Ferðalangar

<

Við mæðgurnar ætlum að stinga af á næstu dögum. Við erum á leið til Bergen Norway ásamt Maju systur á miðvikudaginn næsta. Ég & Saga sætasta ætlum að stoppa í 9 daga en Maja systir í 5 daga. Það er mikil spenna í gangi og við tölum mikið um flugvélina, Steinu, Valdemar og hundana og erum svo að kíkja á myndir af liðinu og svona til að undirbúa Söguna. Heljarinnar batterí að fara svona út en það er sko vel þess virði … fátt annað sem kemst að hjá mér. Búin að þrælskipuleggja það sem þarf að pakka og þess háttar og því í góðum gír …
Ég er eiginlega ekki viðræðuhæf og nenni því engan veginn að tala um neitt annað svo hér set ég punktinn.

Lokað er fyrir svör.