Fyrsta útilegan og fleira :D

Um síðustu helgi stormaði fjölskyldan ásamt Steinunni&Halla í útilegu. Við fórum í Galtalæk og heppnaðist helgin mjög vel. Saga Guðrún var að vonum alsæl og fannst það eiginlega toppurinn að sofa á milli mömmu og Steinunnar :) Það var nú ekki margt gert samt sem áður annað en að liggja í grasinu og leika sér á róló, skruppum jú á Seljalandsfoss og í sund en það telst varla með. Sögu Guðrúnu fannst fossinn afar merkilegur og ægilega fyndið þegar hun grillti í pabba sinn og Halla bak við hann. Flugnaherinn var síðan það sem truflaði okkur mest og gerðumst við fjöldamorðingjar þessa helgi - flugnadráp teljast dráp.
Langamma Bogga og Amma Hoppa (Edda) áttu báðar afmæli í vikunni og hefur Saga verið mjög dugleg að syngja afmælissönginn í tilefni þess. Hún fór líka í kjötsúpuafmæli til ömmu Boggu og skemmti sér mjög vel. Plataði frænkur sínar til að snúast í kringum sig og kallaði svo alla ömmu og afa :D Svo átti Ólöf líka afmæli og við förum í afmælisveislu þar á morgun og án efa á daman eftir að skemmta sér hið besta.
Einhvers staðar hefur daman fengið vítamínssprautu í rassinn því hún talar meira og meira með hverri klukkustundinni. Setningarnar flæða út úr henni og hún er ekki mikið gefin fyrir þögnina. Vítamínssprautan virkaði á fleira því hún er alveg að reyna öll takmörk þessa dagana og hefur sjaldan verið ákveðnari (pent orðað). Hún elskar leikskólann sinn allltaf jafn mikið og það sem ég hef séð til hennar undanfarið er hún sama ráðskonan þar og heima hjá sér. Hún elskar líka að syngja og þar byrjaði eiginlega kjaftagangurinn því í langan tíma hefur hún verið mun duglegri við að syngja en að tala.

Lokað er fyrir svör.