Skemmtileg vika!
18. júní, 2006Þetta er nú aldeilisbúin að vera viðburðarrík vika á bænum
Saga Guðrún brallaði margt og mikið og er í flottu formi þessa dagana. Hún er að taka þvílíkt stökk í þroska að maður sér dagamun á henni. Heilu setningarnar farnar að flæða upp úr henni og hún er þvílíkt að víkka út skilninginn sinn.
Á fimmtudaginn fór hún á Brúðubílinn með leikskólanum. Henni fannst þetta ægilega skemmtilegt. Eins og með margar aðrar svona skemmtanir finnst henni nauðsynlegt að það sé söngur allan tímann til að halda athyglinni og heimtar bara meira þegar lögunum lýkur. Þetta var eftir hádegi og við vorum svo í kaffi á leikskólanum og hún harðneitaði að fara heim - þrátt fyrir átta tíma dag. Hún gæti vel hugsað sér að búa þarna. Við fórum síðan í Kópavoginn og þar skemmti hún sér frekar vel með pabba sínum og Mörtu frænku á trampólíninu. Hún er farin að tala annars vegar um ömmu&afa og hinsvegar ömmu hoppa
Síðan finnst henni reyndar allt fullorðið fólk vera amma og afi þessa dagana.
Á föstudeginum var svo sumarhátíð á leikskólanum! Vegna veðurs varð þetta aðeins minna í sniðum en stefnt var að og megnið af hátíðinni var innan dyra. Saga Guðrún neitaði að leggja sig þann daginn og var því dálítið stuttur þráðurinn í minni konu. Hún skemmti sér vel í skrúðgöngunni sem var farin í kringum sandkassann
en var ekki skemmt þegar við ætluðum að vera með í stórfiskaleik og mokaði restina af útiverunni. Skoppa og Skrýtla komu í heimsókn og henni fannst þær mjög spennandi en þær áttu fyrir hennar parta að syngja allan tímann. Hún vildi nú samt ekki fara of nálægt eins og sést í myndaalbúminu. Svo var pulsupartý inn á Hlíð sem hún var vitanlega ánægð með. Við fórum svo í mat til ömmu&afa eftir að hún hafði lagt sig mjög seint miðað við venjulega og var í banastuði hjá þeim. Hún hélt uppi skemmtiatriðunum, gekk í loftinu og fleira skemmtilegt ![]()
Í gær var svo auðvitað 17.júní takk fyrir! Dagurinn byrjaði á því að Tinna Mjöll kom í heimsókn til okkar og þær voru ægilega ánægðir með hvor aðra. Léku sér í tjaldinu með miklum látum og hlógu og skemmtu sér. Þær dönsuðu hér upp á borðum og voru rosalega góðar saman. Þær voru orðnar þreyttar og tættar í restina og slógust aðeins og Saga spilar sig alltaf voða saklausa í þessum efnum. Talaði um það sem eftir lifði dagsins að Tinna hefði meitt sig!
Eftir blundinn fórum við svo niður í bæ, kíktum á skemmtiatriðin á Arnarhóli þar sem daman dillaði sér og hló mikið. Síðan var ráðist í blöðrukaup og ekkert kom til greina annað en að kaupa Lala blöðru (Stubba blöðru). Hún hékk við einn básinn í hóp af öðrum blöðrum og átti það til að hverfa í rokinu á meðan við biðum í röð og heyrðist þá alltaf angistaróp frá minni konu. Hún var agalega ánægð og er enn með blöðruna sína og er búin að prófa að hoppa og sitja á henni og so far þá hefur hún ekki látið á sjá. Við röltum um bæinn og dagurinn hjá Sögu náði hápunkti sínum í Hljómskálagarðinum þar sem hún fékk að moka í sandkassa. Strætóferðirnar fannst henni óvenjuskemmtilegar en hingað til hefur hún verið fremur hrædd í þeim ferðum. Svo elduðum við með Steinunni og Halla og hún var alsæl með það eins og alltaf!
Í dag er svo bara rólegur sunnudagur. Þau feðginin og auðvitað nýja myndavélin fóru út á Múlaborg að leika og var mikið fjör og mikið tekið af myndum. Það er hálfgert rugl hversu mikið er tekið af myndum hérna á heimilinu þessa dagana og er framboðið í albúminu svolítið eftir því. Nú fer að styttast í sumarfrí hjá okkur mæðgunum og erum við opnar fyrir öllu. Til í allt ef einhver er með skemmtileg plön á þessum tíma