Upp upp á fjall…

Saga Guðrún er að verða alveg eins og hún á að sér. Hún var töluvert mikið eftir sig á sunnudaginn en sjálfri sér lík í gær. Þegar líða tók á daginn þá var hún þó orðin dálítið þreytt og stuttur þráðurinn en í dag hefur hún verið hress. Hún fór á leikskólann í morgun og lék sér úti mestan hluta morgunsins. Svo kom hún heim og fékk sér blund og þegar hún vaknaði var Darri Jökull mættur í pössun og við drifum þau út í garð að leika. Stuttu seinna bættist Tinna Mjöll í hópinn og það var ansi gaman að þeim! Saga&Tinna eru orðnar bestu vinkonur - leika sér saman aðra stundina en slást þá næstu. Darra leist hinsvegar ekkert voða vel á þessar skrýtnu stelpur og var hrifnastur af Óla.
Saga Guðrún fékk gefins páskaegg í ár en fékk ekki að borða það. En frá okkur fékk hún bollastell sem hefur vakið mikla lukku :) Páskaeggið hennar er samt enn óopnað og bíður þess að hún verði nógu hress í myndatöku! Myndirnar af páskadegi eru nú ekki mjög hátíðlegar þó þær séu voðalega sætar :)
Á morgun flytjum við svo aftur heim - því miður - því hér er æðislegt að vera. Saga elskar að leika á pallinum og tekur svo strikið út á róló þegar hún er komin með nóg af garðinum :D Ekki næstum því jafn gaman að vera lítill í Fellsmúlanum og hér :( Svo eru auðvitað styttra í leikfélagana héðan - spurning hvort maður geti rekið Maju&co í sumardvöl erlendis :)

Lokað er fyrir svör.