update
Þetta hefur verið með eindæmum lítið skemmtilegt páskafrí. Saga Guðrún var með hálsbólgu á fimmtudaginn og á föstudeginum var það orðið að sveppasýkingu í munninum en í gær, laugardag enduðum við niður á bráðamóttöku barna á landspítalanum þar sem blóðprufur leiddu í ljós að barnið var bara með smá flensu og slæmt munnangur sem var búið að leiða til þess að hún var orðin of þurr. Hún þurfti að fá vökva í æð og við eyddum tæpum sex klukkustundum þarna á bráðamóttökunni og hún Saga mín var sko ekki slappari en það að hún gólaði á konuna í móttökunni og að sjálfsögðu lét hún lækna og sjúkraliða heyra það líka!! Þeim fannst það nú reyndar mjög gott merki bara
En í morgun fékk hún sér jógúrt að borða og borðaði svo aftur jógúrt, svala og pínu brauð í hádeginu og er að verða sjálfri sér lík sem betur fer. Hefur þess á milli þó bara sofið og er þá vonandi bara að vinna á flensunni og stuðla að því að munnangrið grói en það er ósköp stuttur í henni þráðurinn.
Stefnan er þó að sjálfsögðu sett á það að mæta hress og kát á leikskólann á þriðjudaginn og reyna þá bara að njóta sumardagsins fyrsta í botn fyrst páskafríið er búið að fara svona!