Enn lasin …

Saga Guðrún er ennþá lasin. Ælupestin er þó búin að yfirgefa hana en í gær var hún með háan hita og bullandi hálsbólgu og vildi ekkert setja ofan í sig. Það er þó allt á réttri leið - hún er farin að drekka aðeins þó að hún vilji enn ekki borða og sefur alveg út í eitt. Hitinn er líka orðin lægri og maður sér eitt og eitt bros. Aðallega er hún þó bara ósköp lítil og léleg litla músin. Við erum með matarboð á eftir og vonandi verður hún sæmilega viðræðuhæf þá, þegar amma og afi og langömmurnar koma.
Þetta frí verður sennilega í rólegri kantinum en það er nú bara ágætt :) Miðað við í fyrra þegar það vorut vær veislur á dag alla páskana :D

Lokað er fyrir svör.