Ofnæmispróf & foreldraviðtal
Á mánudaginn fór skvísa skvísanna í ofnæmispróf. Það gekk nú alveg ágætlega, hún svaraði a.m.k. engu á prófinu en við fengum ýmis góð ráð varðandi exemið. Hún er semsagt með barnaexem - sem er mjög dreift um allan kroppinn en sem betur fer ekki mjög slæmt. Við smyrjum hana bara vel og vandlega í bili en svo þegar það er komin reynsla á hvernig hún verður þá ætlum við að prófa að taka mjólkina út hjá henni. Saga Guðrún var ekki allskostar ánægð með þetta - og ég var svo sem ekkert hrifin af því að halda henni á meðan hún var stungin tíu sinnum í handlegginn. En svona er þetta og gott að vera búin að ljúka þessu af. Læknirinn talaði líka um að það væru svona 50% líkur á að hún fengi astma og bað mig um að fylgjast vel með því - en hversu vel hún brást við lyfjunum þegar hún fékk þau bendi frekar til þess að hún fái hann heldur en hitt. En það verður tíminn bara að leiða í ljós!
Í dag fórum við foreldrarnir svo í foreldraviðtal á leikskólanum og það gekk voða vel. Hún er alltaf glöð og ánægð og líður vel þar - nema náttúrulega þegar hún er orðin rosalega þreytt! Hún er bara voðalega dugleg og ekkert kvartað eða klagað! Á leikskólanum er rosalega sjúskuð monsa sem Saga er löngu búin að taka ástfóstri við og er alveg haldreipið hennar. Svo um daginn fannst önnur nýrri monsa sem kennurunum leist nú vel á að gæti komið svona til með að vera vinsæl með hinni en mín kona vill ekki sjá hana! Hin monsan er alveg nr.1,2 og 3
Já það er gott að vera sérvitur lítil stelpa!
Annars er lítið í fréttum. Við erum núna að sjá um ferfættan fósturson og það gengur bara mjög vel. Saga og hann eru orðnir fínir vinir og ætlum við að hafa það notalegt saman um páskana.
Endilega skrifið nú í gestabókina!!!
11. apríl 2006 kl.15:25
Hæhæ elsku Saga, rosalega er gaman að skoða myndirnar af þér. Þú ert orðin svo rosalega stór stelpa. Gleðilega páska og ekki boða of mikið af páskaeggjum
Við byðjum að heilsa mömmu og pabba, með bestu kveðju Jóhanna og Pandora