Grettukjéllíng
24. apríl, 2006Saga Guðrún er alveg upp á sitt besta þessa dagana. Hún er að þroskast svo ótrúlega hratt og það er alveg ótrúlega gaman að fylgjast með henni. Hún blaðrar út í eitt og er orðin svo hrikalega grettin að það hálfa væri nóg. Svipbrigðin eru alveg ótrúleg. Í dag fórum við í Bónus og barnið lét bara eins og það fengi aldrei að borða heima hjá sér og æpti “namminammi” á allt sem var inni í búðinni og var svo voðalega hissa á að við vildum ekki kaupa allt þetta nammi ![]()
Það var sko nóg að gera um helgina. Á laugardeginum fórum við að horfa á Iðunni&Ara keppa upp í Mosó og tókum Ólöfu með okkur. Saga Guðrún er að verða þaulvön að fylgjast með og finnst þetta mjög gaman. Í hálftómum íþróttasal er nóg pláss til að sprella, fullt af athygli og auk þess er Maja frænka konan með matinn - ostaslaufur, ávaxtasafa og niðurskorna ávexti og jú auðvitað vatnsbrúsa. Hvað meira er hægt að fara fram á? Eftir mótið fór hún svo í heimsókn til Steinunnar og Halla sem hún hafði ekki séð síðan fyrir páska og henni varð svo mikið um að hún klappaði nú bara af miklum krafti þegar hún nálgaðist húsið.
Í gær var svo fermingarveisla hjá Mörtu frænku. Afi Addi kom og passaði skvísuna á meðan við fórum í athöfnina og hún var æðislega kát með það. Hún er mikil afastelpa og notar orðið afi yfir bæði afa Adda og ömmu Mónu. Daman mætti svo ósofin í veisluna og var alveg í essinu sínu - heillaði flesta upp úr skónum og naut sín í botn. Í veisunni var ferfætt frænka sem hún var frekar hirfin af - hundur í viðráðanlegri stærð var eitthvað sem hún hefur ekki kynnst áður. Síðan var auðvitað Kristjana frænka líka - en hún alveg hreint dýrkar hana! Þegar veislan var búin var Kristjana að sprella eitthvað inni í salnum og stóð á höndum og svona - og prinsessan gerði sitt besta til að herma eftir og klappaði heilmikið fyrir fimleikaafrekum sínum. Svo brunuðum við í Kópavoginn og fylgdumst með gjafaflóðinu og það var frekar þreytt Saga Guðrún sem sofnaði um ellefu leytið í gærkvöldi. Það eru myndir í albúminu og aldrei að vita nema við bætum við þegar við fáum einhverjar Steinamyndir ![]()
Núna er að fara í hönd prófalestur og verkefnaskil hjá okkur foreldrunum og ég er búin að reyna að semja við skvísuna mína að vera stillt og prúð og alls ekki verða veik. Hvað verður kemur svo bara í ljós - stórfjölskyldan verður þá bara kölluð út ef hún ætlar að taka upp á einhverri vitleysu! Við erum líka að láta okkur dreyma um sumarfrí í Norge í sumar sem ætti að koma í ljós á næstu dögum
:D