Frísk í fjóra daga…
Ja hérna hér! Núna náði stelpuskottan bara fjórum dögum í sæmilegu standi
Við fórum til barnalæknis í dag og hún er frekar slæma eyrnabólgu. Það kom eiginlega pínulítið á óvart þar sem hitinn í seinustu viku stoppaði stutt og hún bara nokkuð hress. Við fórum hinsvegar til læknisins út af langvarandi niðurgangi sem var að plaga skottuna. Eyrnabólgan gæti verið að orsaka niðurganginn en það gæti líka verið fituskortur og því er það sýkalyf, rjómi, meiri mjólkurmatur, meiri acidophilus og fullt fullt af olíum og kremum á skaðbrunninn bossann næstu daga!