Í fréttum er þetta helst…
…Saga Guðrún var frísk í viku. Núna er hún aftur orðin veik litla rófan - var samt alveg eldhress í dag fyrir utan smá pirring í hádeginu á leikskólanum. Við fórum svo til ömmu og afa og lékum okkur aðeins í garðinum og hjálpuðum svo til við eldamennskuna og fengum að borða. Þegar við svo komum heim fannst pabba hennar daman dálítið heit og ákvað að mæla hana - þá var hún komin með 39.4
Ég hef lúmskan grun um að væga eyrnabólgan í vinstra eyranu sem kom í ljós á miðvikudaginn sé að gera þennan óskunda…en læknirinn vildi bíða og sjá hvort hún færi. Þetta er orðið frekar leiðinlegt ástand á dömunni minni og vonandi fer þetta bara að ganga yfir … mér finnst eyrnabólgan samt farin að verða dálítið algengur gestur hjá okkur.
Annars hefur hún bara haft það ágætt þessa viku sem hún var hress. Hún var allan daginn á leikskólanum á föstudaginn og hitti síðan Darra eftir leikskóla og svo Tinnu um kvöldið. Þær Tinna eru bara sætastar saman núna - orðnar voða góðar vinkonur og byrjaðar að leika sér aðeins saman og kalla síðan hástöfum á hvor aðra. Þegar líða fór að háttatíma fór Saga að verða eitthvað þreytt á vinkonu sinni og skammaði hana í gríð og erg
Helgin leið í rólegheitum - við fórum reyndar á dótamarkað í Perlunni og keyptum dúkkuvagn sem vakti mikla lukku. Síðan var Ólöf hjá okkur á sunnudaginn og það fannst Sögunni ekki slæmt.
Annars er lítið í fréttum og við ætlum bara að einbeita okkur að því að láta okkur batna mæðgurnar. Erum frekar leiðar á þessu ástandi. Vonandi er þetta bara einhver hitatoppur og hún kemst kát á leikskólann á fimmtudaginn!