Ein lítil, tvær litlar, þrjár litlar táslur
Saga Guðrún er orðin mikill söngfugl og hefur mjög gaman af því að láta syngja fyrir sig. Við erum söngvasveinar og einn lítill, tveir litlir, þrír litlir eru í miklu uppáhaldi og þá með því að telja ýmist táslur eða putta á sjálfri Sögunni eða einhverri af dúkkunum hennar sem eru sjaldnast langt undan. Hún er meira að segja farin að myndast sjálf við að tralla og syngja og ótrúlegt hvað hún endist við að hlusta á gaulið í mér. Í hvert skipti sem lagið er búið þá heyrist: “jámm” eða “meija” og maður á helst að byrja upp á nýtt.
Annars er lítið að frétta af litla sílesandi syngjandi matargatinu okkar. Hún varð jú auðvitað lasin á sunnudeginum þar sem ég er í skólanum þessa viku. Hún fékk einhverja óskemmtilega magapest með hitavellu og svona. Það var svo lán í óláni að Ólöf frænka er líka veik og Saga Guðrún eyddi gærdeginum í góðu yfirlæti á Álftanesi - raðaði þar í sig ávöxtum og hafði það gott. Hún var svo heima með pabba sínum í dag enda enn með hita í gærkvöldi en er núna hin kátasta og ætlar að mæta hress á Klambra á morgun. Hún er samt byrjuð að hósta aftur og við á þessu heimili erum farin að bíða spennt eftir vorinu. Þessari veikindatíð má fara að ljúka - þó fyrr hefði verið hér á heimilinu.
Í gær vorum við að keyra pabbann á heimilinu í skólann. Seinustu þrjár vikur höfum við skutlað honum í skólann einn seinnipart dags og farið svo sjálfar í heimsókn á Birkimelinn á meðan hann er í skólanum. Þegar við ókum inn í Hringtorgið í Vesturbænum byrjaði mín kona að klappa og hrópa á “amma amma.” Henni varð þó ekki að ósk sinni heldur var brunað með hana út á Álftanes í það skiptið.
Annars er Saga Guðrún orðin dálítið rugluð í ríminu. Föstudags, laugardags og sunnudagskvöld fórum við öll saman í afmælismat. Eins og góðum gestum sæmir færðum við afmælisbörnunum pakka sem daman var ekki alveg nógu kát með að eiga að láta af hendi. Hún er áreiðanlega farin að halda að við þurfum að múta fólki til að fá að koma í heimsókn!
Ætli ég segi þetta ekki bara gott héðan úr Fellsmúlanum. Það er leiðinda spam búið að vera að flækjast í gestabókina okkar … og mig langar endilega að sjá skemmtilegri færslur en það
Hún Ólöf á alveg heiður skilinn fyrir að vera dugleg að kvitta - bæði þar og við myndirnar!