…
Saga Guðrún er búin að hafa það alveg bara mjög fínt undanfarna viku. Hún virðist vera búin að jafna sig á kvefinu og hóstanum sem var að hrjá hana.
Á fimmtudaginn í seinustu viku prófaði hún að leggja sig í leikskólanum. Ég var með pínu hnút í maganum en þetta var sko ekkert mál
Hún er svo örugg þarna að hún er til í næstum hvað sem er - fyrir utan það hvað hún er orðin þreytt í hádeginu. Hún þarf nefnilega að vera tvö daga fram eftir degi í næstu viku þegar ég fer í skólann.
Loksins loksins virðist litla rófan vera að átta sig á því að það er ekki alvitlaust að borða. Hún tók við sér á bolludaginn í seinustu viku og er búin að vera ótrúlega dugleg. Mér leist nú ekki á blikuna á sprengidag og varð að stoppa hana eftir óhugnanlegt magn af saltkjöti og baunasúpu! Vonandi er þetta komið til að vera
Saga Guðrún er líka algjör kelirófa. Það er alveg æðislegt hvað hún er alltaf tilbúin til þess að knúsa og kyssa - hún er alltaf til í að knúsa og kyssa mig en er oftast til í að knúsa pabba sinn. Þessa dagana er hún líka alveg bókasjúk - hún vill lesa bækur endalaust og er alveg sama hvað það. Það mega vera einfaldar harðspjaldabækur en hún hefur líka alveg þrek í að hlusta á lengri bækur, eins og Trillurnar þrjár. Henni finnst dýrabækur sérlega skemmtilegar og eins bækur þar sem bolti kemur við sögu! Hún er líka að taka stöðugum framförum í talinu - kallar núna á Tinnu vinkonu sína í tíma og ótíma
Jafnvel þó að hún sé eiginlega pínu hrædd við hana!
Helgin var annars mjög róleg og góð. Við fórum aðeins að versla í Kringlunni og Saga gekk þar berseksgang. Svo vorum við bara heima að dúlla okkur en fórum út að borða og daman var eins og engill á meðan. Svo kíktum við á ömmu og afa á Birkimelnum og hún klappaði bara fyrir því að leggja í stæðið hjá þeim! Í gær eyddum við svo gott sem öllum deginum upp í Ingunnarskóla á taekwondo móti - Iðunn, Ari & Halli voru öll að keppa. Við gáfumst upp og fórum heim áður en röðin kom að Halla. Saga var á fullu allan daginn og var dauðþreytt þegar komið var heim. Hún hljóp um allt og lagði sitt af mörkum við að hvetja og klappa
Hún er líka orðin ótrúlega dugleg á leikskólanum - hleypur upp í fangið á kennurunum sínum og gleymir alveg að þurfa að kveðja mig
Við eigum sko án alls efa duglegustu stelpuna í heiminum