Góður dagur :)
30. mars, 2006Svona í tilefni þess hvað allar færslur í langan tíma hafa snúist um veikindi þá ákváðum við að setja inn eina færslu núna.
Þessi dagur fór nú samt ekki vel af stað. Saga borðaði hafragraut með rjóma í morgunmatinn, fékk með því lýsi, achidophilus og sýklalyf og þessi rosalegi kokteill fór eitthvað illa í magann á henni. Ég þurfti að skipta um föt á henni eftir morgunmatinn því hún subbaði hafragraut út um allt og um leið og ég var búin að skipta á henni gubbaði hún kokteilnum í hóstakasti svo við vorum alltof seinar af stað á leikskólann! Saga er svolítið gjörn á að kasta upp þegar hún hóstar svo við krossuðum bara putta og vonuðum að hún væri ekki komin með gubbupest!
Það reyndist líka rétt og hún átti ljúfan dag á leikskólann - var að föndra eitthvað páskaföndur! Síðan þegar pabbi var kominn heim og Saga búin að lúlla sér þá drifum við okkur út á róló sem Sögu fannst ekki leiðinlegt. Hún mokaði, rólaði og renndi sér og fannst voða gaman. Eftir góða stund á róló var hún dregin öskrandi í burtu því hún fær jú aldrei nóg. Við mútuðum henni svo með viðkomu í Kjöthöllinni þar sem við keyptum banana. Það er alsæl og uppgefin stelpa sem liggru núna hérna í sófanum við hliðina á mér og horfir á Birtu&Bárð á meðan hún bíður eftir kjötbollunum sem pabbinn er að malla!