Saga sætasta…
…er orðin hress í bili. Þetta var bara óheppni í skottunni að hafa fengið annan vírus strax á eftir honum en læknirinn sá samt ástæðu til að gefa henni púst. Hún var heima af leikskólanum í tvo daga - en það er svo gott að vera að vinna þarna líka - þá er mikið auðveldara að senda hana í leikskólann þegar hún er svona á gráu svæði. Þá er alltaf stutt í mig og við förum þá bara heim…
Dagurinn í dag var annars yndislegur hjá okkur mæðgunum! Við vorum einar heima og kúrðum okkur saman eftir vinnu og Saga Guðrún vaknaði alveg sprautuhress sem er mjög svo óvenjulegt þessa dagana. Við dúlluðum okkur svo aðeins hérna heima og svo stóðumst við ekki mátið, það var svo hlýtt og gott veður og sól og allt. Við fengum okkur göngutúr í kringum húsið með viðkomu á róló og kíktum aðeins í Góða Hirðinn. Þetta er nú ekki mikill göngutúr fyrir mig en tók dágóða stund á skjaldbökuhraða. Svo bara dúlluðum við okkur meira og hún endaði daginn á því að fara í bað og leika við pabba sinn og var dottin út upp úr sjö alveg alsæl.
Nú setjum við stefnuna á að hún verði hress um helgina því Beinta ætlar að koma að gista hjá okku rog það verður aldeilis stuð!