…
Það var stutt gaman hjá Sögunni minni að vera frísk
Núna í kvöld var hún komin aftur með hita! Við ætlum að fara til læknis á morgun og athuga skvísuna en þetta er alveg komið gott!
Hún er nú samt búin að hafa það alveg hreint mjög fínt þennan stutta tíma! Hún er svo ljúf og góð þegar henni líður vel að það er hreint æðislegt að vera með henni
Auðvitað tekur hún sín frekjuköst og verður brjáluð en það er samt minnihluti tímans sem betur fer. Við fórum í heimsókn til Tinnu Mjallar og þær eru orðnar voða góðar vinkonur. Rífast aðallega og slást pínu en eru samt voða glaðar að sjá hvor aðra samt sem áður!
Á föstudaginn fórum við síðan til ömmu&afa í fyrsta skipti í margar vikur eftir mikil veikindi til skiptis öðru hvoru megin. Það var rosalega kát Saga sem sótti ömmu Mónu í vinnuna og hún var mjög hrifin af því að komast í dótið á Birkimelnum. Svo á laugardeginum fór hún í Kópavoginn í pínu pössun og var að sjálfsögðu voða góð…svo var eurovision get-together hér og hún fylgdist með af miklum áhuga og skemmti sér hið besta. Í gær fórum við svo að hitta mömmuhópinn okkar og mikið rosalega var það gaman! Saga var ótrúlega sjálfstæð og ekkert mömmusjúk og tók dót af hverjum sem var
Krakkarnir eur búnir að stækka ótrúlega síðan við hittumst fyrst og alveg frábært að koma svona saman! Síðan fór hún í heimsókn til afa Kjartans með pabba sínum og var alsæl þegar hún fór að sofa. Síðan hittust þær Tinna aftur í dag og tóku sínar syrpur
Auðvitað var líka leikskóli í morgu og við hittumt/sáumst tvisvar í dag og það var bara brosað, hlegið og kysst og ekkert grátið! Svona er hún Saga mín dugleg
Vonandi hef ég svo bara góðar fréttir að skrifa næst - vonandi eru þessu veikindi á undanhaldi. Maður krossar bara putta og vona það besta!
20. febrúar 2006 kl.22:49
Jaeja saga saeta, er ekki komid gott af veikindum? lattu ther nu batna sem allra allra fyrst..
bestu kvedjur hedan fra Gauta og knusadu nu foreldrana…
pussar og kremjur (saenskt lyklabord krefst saenskrar kvedju)
Sandra
20. febrúar 2006 kl.22:50
Jaeja saga saeta, er ekki komid gott af veikindum? lattu ther nu batna sem allra allra fyrst..
bestu kvedjur hedan fra Gauta og knusadu nu foreldrana…
pussar og kremjur (saenskt lyklabord krefst saenskrar kvedju)
Sandra
21. febrúar 2006 kl.20:28
Húff, greyið litla.. mér líst ekkert á þessi veikindi hjá ykkur! Góðan bata!
kv.Svava