Allt á réttri leið

Saga Guðrún er öll að hressast. Hún var hitalaus á sunnudaginn og svo aðallega hundleið á því að hanga heima með mömmu sinni og pabba og með slæman hósta inn á milli. Hún var orðin leið og pirruð og náði ekki að festa hugann við neitt litli anginn.
Í dag var svo farið á leikskólann í fyrsta skipti í viku og hún fékk svona hysteríu hláturskast þegar við beygðum inn Háteigsveginn og hún áttaði sig á því að það var enginn að plata. Síðan hljóp hún á undan mér þegar ég spurði hvort hún vildi ekki fara inn á Hlíð. Í dag hefur hún svo verið allt önnur - eiginlega bara hún sjálf. Glöð og kát :) Samt svaf hún óvenju stutt og alles en var samt alveg í skýjunum. Hún fékk sér líka smá göngutúr í kvöld með pabba sínum, bara nokkrar mínútur og var alsæl. Enda er það ekkert lítið þreytt stúlka sem er komin upp rúm núna - fyrir kl.19 :D Það er hreinlega léttara yfri okkur öllum! Alveg hundleiðinlegt þegar unginn litli er svona vansæll :P

Lokað er fyrir svör.