Blablabla…
Það er ekki alltaf auðvelt að vera til. Til dæmis ef mamman í góðri trú ákveður að búa til klaka úr ávaxtamauki fyrir mann og býður manni þá getur maður alveg orðið brjálaður! Það varð einmitt raunin í vikunni sem hefur nú samt liðið án stórtíðinda í Sögu-landi. Stelpuskottan mín er bara svo mikill draumur að það hálfa væri nóg. Ég var svo óheppin að næla mér í streptókokka og er búin að vera mjög lasin og hún er bara búin að knúsa og kyssa og liggja með mér upp í sófa og knúsa mig á meðan við horfum á teiknimyndir í sjónvarpinu. Það var nú samt ansi sæt stelpa hérna í gær sem var komin með nóg af lasarusnum og færði mér skó og beið svo spennt eftir Steinunni sinni á stigapallinum með gallann í fanginu tilbúin að fara út. Hún skemmti sér gríðarlega vel úti í gær og þær stöllurnar fóru svo aftur saman út í dag. Hún er að verða voðalega mikil útistelpa og meira segja búin að sætta sig við að hafa vettlinga
Hún er líka alltaf jafn ánægð á leikskólanum og ég var líka svo heppin að fá að vera aðeins á deildinni hennar fyrir helgi og fylgjast með og það var alveg frábært. Hún er svo seig þessi stelpa mín ![]()
Jæja nú er svo langt síðan að ég ætla að biðja ykkur um að vera dugleg að kvitta
En síðan er alveg fullt af myndum í janúaralbúminu og nokkrar að týnast inn í febrúaralbúmið. Það má heldur ekki gleyma að það er hægt að setja comment við myndirnar í albúminu líka…