Skjalasafn fyrir febrúar, 2006

Bollabollabolla!

26. febrúar, 2006

Þetta er búið að vera alveg frábær helgi í Sögu landi :) Á föstudaginn eftir leikskóla fórum við mæðgur út á róló að leika okkur og skemmtum okkur alveg rosalega vel. Saga vildi alls ekki fara heim og heimtaði að labba alla leiðina fram og til baka!
Á laugardagsmorgninum fórum við með bollur í heimsókn til ömmu og afa á Birkimelnum og prinsessan fékk sína fyrstu bolludags-bollu. Henni fannst það frekar gott en rjóminn samt bestur! Eftir bolluátið kíktum við á bókamarkaðinn þar sem hún græddi nokkrar bækur og svo var haldið til langömmu Drífu. Eftir blund heima fyrir kom svo Anna Petrea vinkona að leika og stuttu síðar Beinta! Beinta var í pössun hjá okkur í nótt og þær stöllurnar skemmtu sér vel og voru í miklu stuði! Saga var reyndar ekkert rosalega ánægð í dag, vildi ekki leyfa Beintu að hafa neitt dót en svona í heildina var þetta heldur betur vel heppnað! Sögu tókst líka heldur betur að mastera listina að segja Beinta - í stað Badda segir hún rosa fínt Beitta :D :D Seinnipartinn í dag fór Saga Guðrún svo í heimsókn til Maju & co. Þær frænkur, hún og Iðunn fóru út að leika í rigningunni og skemmtu sér rosa vel! Hún var doltið hrædd við Kol en annars alsæl!
Dauðþreytt en alls ekki á því að fara að sofa!

Annars virðist hún bara ekki geta sofið nema að fá púst fyrir svefninn. Hún hóstar og kúgast út í eitt og á erfitt með svefninn! Vonandi fer þessi hósti að hverfa því þetta er hundleiðinlegt ástand!

Saga sætasta…

23. febrúar, 2006

…er orðin hress í bili. Þetta var bara óheppni í skottunni að hafa fengið annan vírus strax á eftir honum en læknirinn sá samt ástæðu til að gefa henni púst. Hún var heima af leikskólanum í tvo daga - en það er svo gott að vera að vinna þarna líka - þá er mikið auðveldara að senda hana í leikskólann þegar hún er svona á gráu svæði. Þá er alltaf stutt í mig og við förum þá bara heim…
Dagurinn í dag var annars yndislegur hjá okkur mæðgunum! Við vorum einar heima og kúrðum okkur saman eftir vinnu og Saga Guðrún vaknaði alveg sprautuhress sem er mjög svo óvenjulegt þessa dagana. Við dúlluðum okkur svo aðeins hérna heima og svo stóðumst við ekki mátið, það var svo hlýtt og gott veður og sól og allt. Við fengum okkur göngutúr í kringum húsið með viðkomu á róló og kíktum aðeins í Góða Hirðinn. Þetta er nú ekki mikill göngutúr fyrir mig en tók dágóða stund á skjaldbökuhraða. Svo bara dúlluðum við okkur meira og hún endaði daginn á því að fara í bað og leika við pabba sinn og var dottin út upp úr sjö alveg alsæl.
Nú setjum við stefnuna á að hún verði hress um helgina því Beinta ætlar að koma að gista hjá okku rog það verður aldeilis stuð!

20. febrúar, 2006

Það var stutt gaman hjá Sögunni minni að vera frísk :( Núna í kvöld var hún komin aftur með hita! Við ætlum að fara til læknis á morgun og athuga skvísuna en þetta er alveg komið gott!
Hún er nú samt búin að hafa það alveg hreint mjög fínt þennan stutta tíma! Hún er svo ljúf og góð þegar henni líður vel að það er hreint æðislegt að vera með henni :) Auðvitað tekur hún sín frekjuköst og verður brjáluð en það er samt minnihluti tímans sem betur fer. Við fórum í heimsókn til Tinnu Mjallar og þær eru orðnar voða góðar vinkonur. Rífast aðallega og slást pínu en eru samt voða glaðar að sjá hvor aðra samt sem áður!
Á föstudaginn fórum við síðan til ömmu&afa í fyrsta skipti í margar vikur eftir mikil veikindi til skiptis öðru hvoru megin. Það var rosalega kát Saga sem sótti ömmu Mónu í vinnuna og hún var mjög hrifin af því að komast í dótið á Birkimelnum. Svo á laugardeginum fór hún í Kópavoginn í pínu pössun og var að sjálfsögðu voða góð…svo var eurovision get-together hér og hún fylgdist með af miklum áhuga og skemmti sér hið besta. Í gær fórum við svo að hitta mömmuhópinn okkar og mikið rosalega var það gaman! Saga var ótrúlega sjálfstæð og ekkert mömmusjúk og tók dót af hverjum sem var :D Krakkarnir eur búnir að stækka ótrúlega síðan við hittumst fyrst og alveg frábært að koma svona saman! Síðan fór hún í heimsókn til afa Kjartans með pabba sínum og var alsæl þegar hún fór að sofa. Síðan hittust þær Tinna aftur í dag og tóku sínar syrpur :D Auðvitað var líka leikskóli í morgu og við hittumt/sáumst tvisvar í dag og það var bara brosað, hlegið og kysst og ekkert grátið! Svona er hún Saga mín dugleg :) Vonandi hef ég svo bara góðar fréttir að skrifa næst - vonandi eru þessu veikindi á undanhaldi. Maður krossar bara putta og vona það besta!

Allt á réttri leið

15. febrúar, 2006

Saga Guðrún er öll að hressast. Hún var hitalaus á sunnudaginn og svo aðallega hundleið á því að hanga heima með mömmu sinni og pabba og með slæman hósta inn á milli. Hún var orðin leið og pirruð og náði ekki að festa hugann við neitt litli anginn.
Í dag var svo farið á leikskólann í fyrsta skipti í viku og hún fékk svona hysteríu hláturskast þegar við beygðum inn Háteigsveginn og hún áttaði sig á því að það var enginn að plata. Síðan hljóp hún á undan mér þegar ég spurði hvort hún vildi ekki fara inn á Hlíð. Í dag hefur hún svo verið allt önnur - eiginlega bara hún sjálf. Glöð og kát :) Samt svaf hún óvenju stutt og alles en var samt alveg í skýjunum. Hún fékk sér líka smá göngutúr í kvöld með pabba sínum, bara nokkrar mínútur og var alsæl. Enda er það ekkert lítið þreytt stúlka sem er komin upp rúm núna - fyrir kl.19 :D Það er hreinlega léttara yfri okkur öllum! Alveg hundleiðinlegt þegar unginn litli er svona vansæll :P

Ekki góðar fréttir :(

11. febrúar, 2006

Saga Guðrún er sennilegast með RS-vírusinn og er komin með smá lungnabólgu og eyrnabólgu :( Það eru líka komin astmahljóð í hana og við þurfum að fylgjast vel með henni. Hann vill fá hana aftur ef hún versnar og ef hún skánar ekki þá á hún að koma í síðasta lagi á mánudaginn!
Elsku litla stelpugreyið! Þetta er ekki skemmtielgt!

Ekki gera svona :)

10. febrúar, 2006

Fyrsta þriggja orða setningin kom í vikunni. Við mæðgurnar vorum að kubba saman inn í herbergi og eitthvað leist dömunni ekki á byggingarhæfileika móður sinnar því hún greip í höndina á mér og sagði: EKKI GERA SVONA :D :D :D Ég giska á að sköpunarhæfileikar mínir liggi á öðrum sviðum … eða ég vona það :)
Annars er hún bara ósköp lasin. Ennþá með 39 stiga hita og ljótan hósta. Ef hún verður ekki betri á morgun þá ætlum við að kíkja á barnalæknavaktina í Domus. Þrátt fyrir hita og hósta þá er hún ótrúleg hress, leikur sér bara … soldið styttri þráðurinn en venjulega en samt alveg ótrúlega góð. Það er sko á hreinu að hér er á ferðinni besta stelpan :) Við kúrum bara mikið og knúsumst en það er svosem ekkert nýtt :) Helgin verður tekin í það að láta sér batna því stefnan er tekin á það að fara á leikskólann á mánudaginn. Það er svo gaman þar og ekkert gaman að vera veikur :D

Lasin lús :(

8. febrúar, 2006

Æi það eru sko ekki góðar fréttir núna :( Saga Guðrún er komin á tvö lyf - við streptókokkum og síðan líka við augnsýkingu! Eyrun voru þó hrein og hún lét lækninn alveg heyra það!
Við mæðgurnar ætlum bara að kúra og knúsast og láta okkur batna því ég er jú heima í dag. Komin með rosalegt ofnæmi í allt andlitið og ekki gott ástand…

Blablabla…

7. febrúar, 2006

Það er ekki alltaf auðvelt að vera til. Til dæmis ef mamman í góðri trú ákveður að búa til klaka úr ávaxtamauki fyrir mann og býður manni þá getur maður alveg orðið brjálaður! Það varð einmitt raunin í vikunni sem hefur nú samt liðið án stórtíðinda í Sögu-landi. Stelpuskottan mín er bara svo mikill draumur að það hálfa væri nóg. Ég var svo óheppin að næla mér í streptókokka og er búin að vera mjög lasin og hún er bara búin að knúsa og kyssa og liggja með mér upp í sófa og knúsa mig á meðan við horfum á teiknimyndir í sjónvarpinu. Það var nú samt ansi sæt stelpa hérna í gær sem var komin með nóg af lasarusnum og færði mér skó og beið svo spennt eftir Steinunni sinni á stigapallinum með gallann í fanginu tilbúin að fara út. Hún skemmti sér gríðarlega vel úti í gær og þær stöllurnar fóru svo aftur saman út í dag. Hún er að verða voðalega mikil útistelpa og meira segja búin að sætta sig við að hafa vettlinga :) Hún er líka alltaf jafn ánægð á leikskólanum og ég var líka svo heppin að fá að vera aðeins á deildinni hennar fyrir helgi og fylgjast með og það var alveg frábært. Hún er svo seig þessi stelpa mín :)
Jæja nú er svo langt síðan að ég ætla að biðja ykkur um að vera dugleg að kvitta :) En síðan er alveg fullt af myndum í janúaralbúminu og nokkrar að týnast inn í febrúaralbúmið. Það má heldur ekki gleyma að það er hægt að setja comment við myndirnar í albúminu líka…