Skjalasafn fyrir janúar, 2006

Brjálað fjör :)

31. janúar, 2006

Það er nú aldeilis mikið búið að ganga á hjá dömunni undanfarna daga. Við mæðgurnar vorum í útlegð um helgina á meðan íbúðin var parketlögð og höfðum það alveg hreint ótrúlega gott. Saga Guðrún var eins og engill og lét sér fátt um finnast fyrst að ég var með henni. Við fórum í sund í fyrsta skipti í langan tíma, heimsóttum Steinunni & Önnu, heimsóttum ömmu og skemmtum okkur bara mjög vel. Daman var samt ekkert alltof sátt við fjarveruna frá pabba sínum og var viss um að í hvert sinn sem síminn pípti að það væri pabbi :) Í dag fór Saga síðan í fyrstu klippinguna á stofu :shock: Við sömdum við Nönu frænku í gær en þá var smá boð í Kópavoginum og fórum í klippingu til hennar í dag. Saga Guðrún var síðan alveg einstaklega stillt - soldið hrædd við rakvélina og hárþurrkuna en með eindæmum góð. Núna er hún með stuttan topp og alveg hriiiiikalega sæt og fín :) Ennþá sætari og fínni en venjulega ef það er þá hægt!

Tralalala

22. janúar, 2006

Nú er það skylduræknin að fara með mig hérna en voðalega lítið í fréttum. Reyndar varð skvísan veik í gær - vaknaði um miðnætti í fyrrinótt með bullandi hita og var rosalega veik í gær. Vaknaði síðan hitalaus og eldhress í dag þannig að þetta hefur verið bara bull! Svona til öryggis vorum við heima í dag enda ekkert rosalega langur í manni þráðurinn þegar maður er búinn að vera veikur.

Saga Guðrún er alltaf jafn ánægð á leikskólanum og er alltaf að læra meira og meira nýtt. Hún elskar líka að hafa krakka og fjör í kringum sig. Um síðustu helgi hittumst við hjá ömmu og afa á Birkimelnum og allir krakkarnir fimm voru þar saman og sú var alsæl. Þau hittust svo aftur á föstudaginn en þá í meiri rólegheitum en núna í kvöld var Ólöf hjá okkur og þær eru alveg dásamlegar saman :) Síðan er Steina frænka komin og Sögu leist nú ekki alveg á þessa konu sem kom bara heim til hennar og lét eins og hún ætti heima þar. Undarlegt nokk þá bara var hún fljót að sætta sig við þó að maður verði nú að fylgjast vel með svona furðufuglum!

Sem betur fer er Saga ekki eldri en hún er. Því að á tveimur og hálfum mánuði hafa þrír ástvinir látist í fjölskyldunni. Hún er s.s. búin að missa langalangafa, langömmu og svo núna síðast langafa. Það er ekkert lítið að vera 15 mánaða og hafa farið í þrjár erfidrykkjur. Ég er nú töluvert eldri en hún og hef bara farið í fimm :(

Tralalala

13. janúar, 2006

Jæja, þá er komin helgi og vonandi drattast þessir blessuðu foreldrar mínir með mig út í snjóinn að leika. Mamma greyið er samt ennþá hálflasin og pabbi verður að vinna en maður veit aldrei.
Ég fór til HNE sérfræðings í vikunni og var ekki hrifin! Enda sagði hann mér það sem ég vissi fullvel, að ég væri með frábær eyru og sko ekkert eyrnabarn hér á ferð. Mér líður samt ennþá illa og mamma er að stefna á að skera niður allar mjólkurvörur á næstunni og athuga hvernig mér líður þá. Við vitum allavega að skyr fer ekki vel í magann á mér :( Á leikskólanum í dag var mér boðin soja-jógúrt í staðinn fyrir skyr og ég var svo móðguð að ég fleygði disknum í kennarann minn og það munaði litlu að það hefði sturtast yfir hana! Ussususs!
Í kvöld fundu mamma og pabbi líka loksins almennilegan mat sem mér líkar! Þau elduðu grænmetislasagne með kjúklingabaunum og það fannst mér sko gott! Ekkert kjötsull takk fyrir, fyrir Sögu sérvitring. Síðan fékk ég nammi í eftirrétt eða AB mjólk með smá sultu sem ég sötraði í gegnum rör. Ég var sko vel södd þegar ég fór að sofa.

Við Tinna Mjöll vinkona mín erum búnar að hittast tvisvar núna í vikunni og oh boy þá er fjör! Við erum sko góðar saman, litlar frekjurófur sem vitum alveg hvað við viljum. Mamma setti inn myndir af heimsókninni í dag :)
Ég er líka alltaf að verða duglegri og duglegri að tala. Hef alveg heilmikið að segja og stefni á að tala jafnmikið og hún mamma mín! Síðan er mamma líka að kenna mér nokkur tákn á táknmáli svona að gamni bara og núna nota ég bæði orð og tákn yfir bolti og stundum yfir borða líka. Núna erum við að æfa leika og búið :) Ég er ekkert smá dugleg stelpa! Ég er líka búin að læra alla andlitspartana nema augun (held alltaf að þau séu að meina eyrun) og svo kann ég alveg heilan helling af allskonar dýrahljóðum. Ekki skrýtið að þetta lið sé svona montið af mér :)

Óhamingjusöm lítil Saga :(

8. janúar, 2006

Það hefur mikið gengið á á heimilinu þessa fyrstu vku nýja ársins. Sögu Guðrúnu hefur liðið frekar illa og átt erfiða daga en þó haft það ágætt inn á milli. Við fórum í byrjun vikunnar á Barnalæknavaktina í Domus og kom í ljós að eyrun voru í toppstandi en hún greinilega svona viðkvæm fyrir þessari leiðinda jaxlatöku sem er að angra hana núna. Hún hefur ekki sofið almennilega í fleiri vikur og það setur auðvitað sinn svip á sálartetrið. Við reyndum að gefa henni íbúfen fyrir svefninn eins og okkur var ráðlagt en það hafði ekki tilætluð áhrif. Við ákváðum því að fara með hana til HNE læknis í næstu viku til að athuga það og ef það virkar ekki þá er ég að hugsa um að athuga hvort hún sé jafnvel með eitthvað fæðuóþol.
Þrátt fyrir þessa vanlíðan var það himinsæl Saga sem mætti á leikskólann á mánudaginn eftir helst til langt jólafrí. Hún er svo ánægð á leikskólanum og líður svo vel að það er alveg yndislegt að fylgjast með henni þar. Í næstu viku ef allt gengur vel ætlar hún að prófa að vera í hvíld í leikskólanum. Það hafa nefnilega komið upp nokkrar aðstæður þar sem hefði verið gott að geta skilið hana eftir og fyrst að við höfum plássið er sök sér að prófa það fyrir hana.
Daman afrekaði nú líka ýmislegt hérna á heimilinu eins og til dæmis bara það að eyðileggja fartölvuna mína. Það var nú ekki svo slæmt þar sem að hún var orðin eldgömul og Saga hefur verið að vinna í því svona smátt og smátt síðan í haust. Fyrst skemmdist skjárinn, svo tók hún af henni takka og síðan bara hellti hún yfir hana smá vökva. Hún virkar nú samt greyið en ekki allir takkarnir svo ég græddi á þessu nýja tölvu sem verður þó gætt mun betur heldur en gamla hrósins.
Annars er lítið í fréttum, ég byrjaði í skólanum og varð veik svo gott sem um leið og Óli byrjar í skólanum á morgun. Ég vonast til að geta farið að vinna en það verður bara að koma í ljós. Flensudrulla og hiti fara ekki sérlega vel saman við uppsafnað svefnleysi og því er ég mun slappari en ella. Vonandi er þetta að verða búið samt og aðrir heimilsmeðlimir sleppi.
Ég er líka að stefna á að fara að taka síðuna í gegn því það þarf að gera aðeins upp hérna. Ég þarf að setja nýjan bakgrunn og uppfæra ýmsar upplýsingar :)

Gleðilegt nýár :)

1. janúar, 2006

Þá er árið 2006 bara hafið. Ég get nú ekki haldið öðru fram en að Saga Guðrún hafi tekið því með mikilli ró því að hún lognaðist út af í fanginu á mér um leið og nýárið gekk í garð og lét ekkert trufla sig. Ekki sprengingar og læti eða kossa og knús í tilefnis nýárins - það er svo ansi gott að kúra í mömmufangi og í ruggustólnum hans afa þá er það ennþá betra :) Við áttum einstaklega ljúft og gott kvöld út á Álftanesi í gærkvöldi. Saga Guðrún hagaði sér eins og ljós og naut þess í botn að kanna þessi húsakynni og leika við frændsystkini sín sem henni finnst alveg æðisleg :) Ólöf á sko fullt af flottu dóti sem gaman er að fikta í og allskonar dót leyndust líka í herberginu hans Óttars og var mín kona ekki hrifin þegar hann lokaði að sér. Hún var bara nokkuð viss um að hún væri að missa af fjöri!
Ólíkt því sem var uppi á teningnum á aðfangadag var hún alveg til í að borða kalkún þó að sætar kartöflur og gular baunir hafi verið í miklum meirihluta. Henni leist ekkert alltof vel á Herka en hann var sko með það á hreinu hvar best var að bíða þess að eitthvað myndi fara til spillis og vildi endilega sitja hjá Sögu en mín var ekki sátt við það. Þegar leið á kvöldið var hún orðin sátt bara við þennan ferfætta frænda og lét hann ekkert trufla sig.
Sögu fannst ekki mikið til koma með flugeldana eða brennuna. Hún skipti ekki svip á brennunni og fannst þetta allt bara mjög undarlegt og alveg hreint ekki skemmtilegt. Það fór þó fjarri því að henni fyndist þetta eitthvað leiðinlegt og eftir skaupið fór hún að taka eftir ljósum og sprengingum. Það entist stutt því á miðnætti var mín steinsofnuð.

Við höfum svo legið í leti í dag. Prinsessan svaf til hálf tólf og er búin að leggja sig heilmikið síðan þá. Eitthvað er að angra hana þessa stundina en er óvíst hvort það séu tennurnar eða eyrun - hegðunin svipar til tanntökuvesens og er það nú ólíkt skárra en eyrnabólga. Vonandi verður hún orðin hress á morgun og sú verður vonandi kát að komast aftur á leikskólann eftir rúmrar viku fjarveru.