Jólastúss

Á fimmtudaginn var jólaball á leikskólanum. Við Saga flýttum okkur heim í hádeginu og hún fékk sér blund áður en fjörið byrjaði. Hún var pínulítið smeyk við þetta enda varla von á öðru, og ríghélt sér í þann sem var að dansa með hana í kringum jólatréð. Eins og á öllum alvöru jólaböllum þá komu jólasveinar og stóð dömunni ekki alveg á sama en hún þurfti nú samt að fylgjast vel með þeim á meðan þeir sungu og trölluðu. Þegar það var búið að dansa kringum jólatréð fór hver deild inn á sína stofu og jólasveinninn kom með pakka. Eftir jólaballið grenjaði mín kona alla leiðina heim - ég held að hún hafi viljað fara heim með Beintu því hún var mjög upptekin við að keyra kerruna og hjálpa til. Þær eru alltaf að verða betri og betri vinkonur þær stöllurnar - en nú er allt í einu hlaupinn púki í Beintu. Á föstudaginn á leikskólanum var Saga hjá henni og Beinta reyndi alltaf að hrinda Sögu niður. Þá skammaði ég hana náttúrulega og sagði henni að vera góð en litla Sögulúsin var þá “aaaaa” við Beintu í staðinn og tók skammirnar til sín :D :D :D Á föstudaginn hitti Saga Guðrún síðan frænku sína sem verður 1 árs í janúar. Henni leist ekki alveg nógu vel á þetta fyrirkomulag - óttaðist samkeppnina og fannst það alveg hreint ekkert sniðugt þegar ég tók Hrefnu frænku hennar í fangið og ekkert ofboðslega hrifin af því hún fór svo í fangið á ömmu. Hinsvegar var Hrefna yfir sig hrifin af Sögu :) Ég er komin í jólafrí og bara eitt próf eftir hjá Óla. Við erum því á fullu að baka og gera fínt fyrir jólin - jú og kaupa jólagjafir. Við fórum í Smáralindina í gær - öll þrjú að kaupa jólagjafir og jújú það gekk en að vera með 13 mánaða þrjóskupúka með sér í jólagjafaleiðangri er ekki alveg málið. Við fórum síðan líka í Blómaval að skoða jólalandið þar. Bæði þar og síðan við ísbirnina í Kringlunni veit Saga ekki alveg hvað hún á að halda. Hún virðist soldið vera að velta því fyrir sér hvort þetta sé lifandi eða ekki og það er þess vegna eins gott að hafa varann á :) Látum þetta gott heita í bili og förum aftur að einbeita okkur að jólaundirbúningi :)

Lokað er fyrir svör.