Fátt að frétta…
Héðan er fátt að frétta! Við foreldrarnir erum búin að vera í prófum og stelpuskottið hún Saga Guðrún hefur bara skottast hér um og verið síðan soldið í pössun hjá ömmu Eddu. Ég klára þó prófin á morgun og þá ætlum við mæðgurnar að reyna að jólast aðeins saman og njóta þess að slaka á. Pabbinn á bænum á nú eftir fjögur próf og er því nóg að gera hjá honum!
Á fimmtudaginn er jólaball á leikskólanum hjá Sögu og Steinunn ætlar að fara með hana. Eins spennandi og það er að fara á fyrsta jólaballið sitt þá verðum við Óli víst í jarðaför - því elsku langamma Maja lést í vikunni. Við Saga ætlum samt að mæta á jólaballið í vinnunni hjá afa Adda ef af því verður til að ég upplifi þetta með henni líka
Annars verða nú að öllum líkindum nóg af jólaböllum í framtíðinni en þetta er svona!
Saga Guðrún er búin að standa sig eins og hetja undanfarið við að vera í pössun . Hún hefur verið með eindæmum heimakær og mest bara heima hjá okkur þar til að á svona prófatímum og henni er bara alveg sama
Það er nú samt alltaf voða gott að koma aftur heima og hitta okkur en hún er stillt og góð í annarra manna húsum þó hún eigi sín móment hérna heima eins og allir aðrir
Maður er nú einu sinni orðinn 13 mánaða - alveg að verða fullorðinn svo það er eins gott að haga sér vel og vera til fyrirmyndar