Sjálfala stelpa…

Jæja núna eru mamma og pabbi lögst í próflestur og ég geng bara sjálfala um! Nei - það er nú kannski fullmikið sagt! En þau eru að rembast við að vera dugleg að læra og ég er nú ekkert endilega að reyna að gera þeim auðvelt fyrir. Ég fékk smá hita í gær og er mjög kvefuð en samt bara nokkuð hress og ætla nú bara að vera hress og kát! Það má enginn vera að því að vera veikur í desember!
Á laugardaginn fór ég til ömmu Eddu og fór að stússa með henni. Ég hitti auðvitað Mörtu&Maríu líka og sýndi þeim allar mínar bestu hliðar að sjálfsögðu! Ég kom ekki heim fyrr en á háttatíma :shock: Á sunnudaginn fórum við svo í afmælisveislu til hennar Önnu Petreu vinkonu minnar. Í fyrstu var ég töluvert feimin enda var fullt af fólki sem ég þekkti ekki og svo var Anna svo rosalega glöð að sjá mig! En ég náði mér fljótt á strik og það var rosalega gaman. Fékk súkkulaðiköku og ís að borða og lék mér helling með dótið hennar. Hún á rosa flottan stól sem ég fékk nokkrar góðar byltur ofan af - ég held nefnilega stundum að ég sé stærri en ég er. Í dag kom Maja frænka svo að sækja mig þegar hún var búin að vinna og ég fór upp í Grafarvog með henni. Ég var að sjálfsögðu til fyrirmyndar í alla staði og fékk mér blund í Majufangi og allt. Ég fékk grjónagraut í kvöldmatinn og svo fórum ég, Maja og Iðunn í IKEA og ég fékk ís í eftirrétt og fékk að borða hann ALVEG sjálf…mmmm… það fannst mér gott og var víst ansi snyrtileg við þetta!
Í morgun þegar ég og mamma fórum á leikskólann þá vildi ég strax fara til kennarans míns en ekkert fara með mömmu inn á hennar deild! Ohhh hún mamma er svo skrýtin en hún er alveg yfir sig ánægð með hvað ég er dugleg! Eins og það sé ekki sjálfsagður hlutur? Mamma á eftir að fara í tvö próf og pabbi fimm. Á mánudaginn næstu viku ætlum við mamma að fara að jólast og baka smákökur og kaupa jólapakka. Ef einhver er hræddur um að mamma gleymi þeim verða þeir að láta okkur vita hérna :) Jæja - ég er löngu svifin inn í draumalandið eftir skemmtilegan dag…
Kveðja
ykkur knúsímús
Saga Guðrún sætasta sem er LOKSINS LOKSINS farin að segja pabbi :)

Lokað er fyrir svör.