Saga Sjónvarpsstjarna
Þá er Saga Guðrún búin að afreka að koma í sjónvarpinu! Það var umfjöllun um hana Beintu Mariu í Ísland í dag í kvöld og þar komum við mæðgurnar báðar í mynd og ég meira að segja talaði. Beinta var nú samt auðvitað aðalmáli og langsætust og okkur fannst þetta alveg ágætt barasta! (Hægt að horfa á endursýninguna hér)
Ofnæmisprófið gekk vel - ekkert pensillín ofnæmi hjá dömunni og henni fannst þetta bara ferlega skemmtileg læknisferð. Fékk pensillínlausn að drekka og fékk svo að leika sér með allt skemmtilega dótið á biðstofunni í alveg klukkutíma rúman! Ekki slæm skipti - áreiðanlega skemmtilegasta læknisferðin hingað til!
Á þriðjudaginn komu Tinna & Darri Jökull í heimsókn til okkar og hann var líka í pössun hjá okkur svolitla stund. Það gekk ótrúlega vel nema að Saga setti upp “ég er ótrúlega hneyksluð” svipinn sinn þegar Darri hló og var að skemmta sér vel.
Annars er hún alltaf jafn dugleg á leikskólanum - algjört yndi! Það eru líkar þvílíkar framfarir sem barnið er að taka á öllum sviðum. Hún dansar og syngur og er alltaf að læra fleiri orð. Hún er svo mikil mús!
Það eru komnar inn fullt af flottum myndum - bæði í nóvember albúmin og fleiri. Tókum æðislega jólamyndaseríu í gærkvöldi - alveg dásamlega
Endilega segið mér svo hvernig ykkur leist á sjónvarpsstjörnur landsins
2. desember 2005 kl.09:05
Sat alveg límd fyrir framan skjáinn í gær! Beinta er algjört kraftaverk eins og móðir hennar sagði
Það er nú flott að þú ert ekki með penicillinofnæmi Saga