Jóljóljóljól…
25. desember, 2005Við viljum biðja á að óska öllum gleðilegra jóla ![]()
Saga Guðrún er aldeilis búin að hafa það gott í dag og í gær. Ég held að henni lítist nú bara vel á þessi jól og geti alveg hugsað sér að gera þetta oftar
Við byrjuðum aðfangadag á því að fara í síðustu pakkaheimsóknina til ömmu Rönku sem vann huga hennar og hjarta á fyrstu metrunum þar sem fyrst afhenti hún henni pakka og bauð svo upp á súkkulaðirúsínur
Svona í tilefni dagsins fékk hún að narta í þær og var alsæl. Við fórum síðan léttan hádegismat á Birkimelinn til að losa okkur við fleiri pakka og knúsa ömmu&afa þar gleðileg jól.
Síðan fékk daman sér blund en lagði sig alls ekki nógu lengi miðað við það sem við foreldrar höfðum kosið. Eftir pínu hrakfarir þegar kom að jóladressinu komumst við í Kópavoginn rétt fyrir 18.
Saga gaf ekki mikið fyrir kalkúninn og meðlætið heldur heimtaði maísstöngla í sitthvora höndina og snæddi þá með bestu lyst í hátíðarmat sem og eina græna baun. Hún skilaði samt stönglunum með ákveðnu milli bili þegar hverri rönd var lokið og heimtaði nýjan. Við snérum aðeins á hana og var frekar mikið hlegið að þessu tiktúrum - svo lengi sem hún hélt að maturinn kæmi af disknum var mín kona ánægð
Við byrgðum okkur upp af allskonar ávöxtum í nesti fyrir dömuna sem reyndist ákaflega skynsamlegt. Hún leit ekki við ísnum en borðaði vínber og mandarínur með bestu lyst og síðar um kvöldið borðaði hún heila öskju af bláberjum á meðan mamman gleymdi sér við að opna pakka og náði ekki að stoppa átið.
Saga Guðrún sem og við foreldrarnir fékk ákaflega margar fallegar jólagjafir. Hún stóð sig nokkuð vel í að opna pakkana en það er óhætt að segja að hún átti flestar gjafir undir trénu. Við vorum þó fljót að stinga undan megninu af pökkunum svo hún myndi ekki missa sig í æsingnum. Það sem stóð upp úr hjá henni í gærkvöldi var kápa frá langafa Gettu & langömmu Sigrúnu en hún gekk um í henni og fékkst ekki til að fara úr henni megnið af kvöldinu. Síðan grét hún bara og fór í hana aftur þegar hún var tekin úr
Svo fékk hún trommu frá langömmu Rönku sem var líka frekar vinsæl
Í morgun þegar hún svo vaknaði gerði hún öðrum gjöfum góð skil og hefur verið frekar sæl hér í dag!
Við fórum síðan í mat til ömmu og afa í dag og þá hljóp einhver ólund í litlu konuna og fékkst hún ekkert til að borða af steikinni en fékk sér þó smá ís. Hún var dauðþreytt enda sofnað seint í gær og vaknað snemma í dag miðað aðstæður og þrátt fyrir langan og góðan midegislúr í dag þá sagði pakkaþreytan til sín. Stuttu fyrir heimfór kom fram svefngalsi hjá dömunni og sprellaði hún rækilega með afa sínum enda var hún dottin út stuttu eftir að komið var í bílinn. Hún tróð svo í sig ávöxtum og skyri hérna heima og virðist hress. Kærulausa móðirin tók síðan allt í einu eftir því að barnið var ískyggilega þægt og kom þá í ljós að hún var að gæða sér á konfektmola í bréfi og öllu með bestu lyst. Það fannst henni bara alls ekki slæmt og var ekki með nokkru móti hægt að taka þetta af henni þegar hún ljómaði eins og sólin og gaf frá sér ánægju hljóð. Það er jú bara jól einu sinni á ári ![]()
Á morgun er svo hangikjöt hjá ömmu&afa og stórfjölskyldan þar. Síðan eigum við eftir eitt jólaboð enn en við missum af einu sem er á sama tíma og hangikjötsveislan. Saga Guðrún er svo í fríi á leikskólann þar til á næsta ári
og ég þarf bara að vinna tvo daga seinnipart vikunnar. Ansi ljúft alveg hreint
Við erum búin að hafa það ótrúlega gott og njóta jólanna í botn