Lítil mús :*
Það er pirruð lítil mús hérna í Fellsmúlanum þessa dagana! Við vitum svosem ekki fyrir víst hvað er að angra hana en það er ekki ólíklegt að það gæti verið eyrnabólga! Við vonum að sjálfsögðu að svo sé ekki - en við fórum með hana til læknis á þriðjudag og þá var vökvi í eyrunum. Síðan á miðvikudeginum fékk hún rosalega ljótan hósta og var alveg stútfull af hori svo kannski hefur eitthvað versnað síðan þá. Við krossum bara putta og vonum ekki því hún á tíma í ofnæmisprófi eftir 9 daga.
Hún er ótrúlega dugleg á leikskólanum! Mér finnst líka algjört æði að geta fylgst með henni og stelst oft á dag að kíkja á hann inn um kýraugað á hurðinni. Í gær sá ég hana í fyrsta skipti sitja eina á gólfinu en ekki í fanginu á kennurunum og leika sér sem hlýtur að vera stórt framfaraskref! Í gær gekk hún líka grátandi frá mér og inn á Hlíð … frekar skondið. Hún vissi semsagt að hún ætti að fara þarna inn og var alveg til í það en gat alls ekki látið hjá líða að gráta ef vera skyldi að ég myndi hætta við
Það eru að bætast við ný orð hjá henni á hverjum degi og hún er mjög dugleg að nota þau. Það eru þó ekki allir sem skilja hana en mest notaða orðið þessa dagana (að nei og mamma undanskildum) er sérðu sérðu
Hún lærði líka bæði að segja hoppa og að hoppa á fimmtudaginn og er það mikið sport!
Helgin verður bara róleg enda Óli að vinna og við mæðgur ætlum bara að skrölta aðeins um - kíkja á Iðunni frænku keppa og svon ýmislegt bara ![]()
Enn og aftur - endilega verið dugleg að skrifa í gestabókina hjá okkur :*