Vikan er búin að vera frekar róleg hjá aðalstelpunni í bænum. Við foreldrarnir erum hinsvegar búin að standa í ströngu! Saga Guðrún hefur verið gjörsamlega uppgefin og dagurinn að mestu farið í það að halda henni vakandi! Óli er búinn að mála litla herbergið svona líka fallega gult og í gær sáum við Steinunn um listræna útfærslu á barnaherberginu. Það var nú frekar hissa Saga sem vaknaði í gær og allt í einu var bara tilbúið 1.stk herbergi með öllu dótinu hennar! Amma Móna saumaði gardínur sem eru rosalega fínar og herbergið bara rosalega fínt. Ég keypti svo dótakistu og speglaflísar í IKEA og svo er hún með svona lítið borð og tvo stóla sem veita endalaus tækifæri til að klifra. Hún var búin að stoppa í svona 2mín í fína herberginu þegar hún var komin upp á stól og þaðan fór hún upp á borð & af borðinu upp á kommóðu og þar gerði hún heiðarlega tilraun til þess að kasta sér í gólfið. Í gærkvöldi var það svo reið Saga sem fór að sofa í nýja herberginu og fékk að koma upp í mömmuholu um miðnætti. Núna í kvöld var hún hinsvegar skotstund að sofna og sefur (7…9…13) enn eins og engill. Við ætlum að bíða aðeins með hina svokölluðu afvötnun eða þar til að hún er farin að mynda þol gagnvart leikskólanum - því hún er nógu þreytt þó hún fái fínan nætursvefn svo hún fær bara að lúlla hjá okkur í bili.
Við fórum í afmælisheimsókn til ömmu Mónu á föstudaginn og þar var Saga frekar hrifin af Ara frænda sínum. Hún er hætt að vera hrædd við stráka - en hún þekkir bara svo fáa því að hún á eiginlega bara frænkur! Í dag fórum við svo í afmælismat til langömmu Drífu og daman að sjálfsögðu mjög ánægð með athyglina og frænkurnar sínar! Hitti meira að segja eina frænku sem hún hefur aldrei séð áður - og setti í brýrnar og var frekar hissa en staldraði nú samt góða stund í fanginu á henni áður en hún vildi til mömmu sinnar! Á morgun hefst svo ný leikskólavika sem vonandi mun ganga vel! Ég var heima einn dagí seinustu viku og Saga vildi bara vera hjá Beintunni sinni! Litla músin mín! Hún varð alveg bara brjáluð þegar Beinta hvarf úr augsýn…æi mér finnst þetta svo sætt! Greinilegt að hún tengir hana við öryggið hérna heima og svona :)

Lokað er fyrir svör.