Saga leikskólastelpa :*
Saga Guðrún leikskólastelpa er ekkert smá dugleg
Við fórum kl. 8 í gær og ég var með henni í tæpan klukkutíma … svo var hún ein í klukkustund og skældi bara hreint ekki neitt - var bara svolítill segull á kennarann sinn en það lagast þegar hún fer að venjast!
Í dag mættum við aftur kl.8 og ég var í rúman hálftíma en þurfti svo reyndar að koma að gefa henni að borða! Það var ekki það sama að borða grautinn hjá mér og hjá kennaranum! Svo fór hún í tónstund að dilla sér og voða stuð á henni - kom síðan til mín í kaffinu og var síðan bara mjög góð. Ég segi það ekki - hún var að sjálfsögðu rosalega fegin þegar ég kom að sækja hana
Annars er hún voðalega kvefuð og er alveg spurning um morgundaginn hvort hún fari eða fái að vera hjá Steinunni! Ég hætti kl.11 á morgun og það er stór samverustund sem væri ábyggilega gaman fyrir Sögu að fara á en það kemur bara í ljós! Við erum nefnilega að fara í jarðaför hjá langalangafa hennar Sögu og hún ætlar að vera hjá Steinunni á meðan!