Allt á fullu allstaðar …
27. nóvember, 2005Það er nóg að gera hérna hjá okkur eins og alltaf. Við erum að byrja að undirbúa jólin enda próf að skella á hjá okkur foreldrunum og erður þá flest annað að sitja á hakanum. Við fórum í Kringluna í dag og þar var verið að kveikja á jólatrénu og ýmislegt jóla-tengt í gangi og meðal annars rákumst við á tvo jólasveina. Sögu fannst þessir karlar nú dálítið furðulegir en þegar við sáum fjóra þeirra vera að syngja þá brast mín kona bara í grát og leist bara ekki vel á þessa furðufugla. Henni leiðast nú samt ekki ljósin og skreytingarnar sem henni finnst frekar flottar. Við erum reyndar ekki byrjuð að skreyta neitt hér en það stendur til bóta á næstu dögum.
Saga Guðrún stendur sig eins og hetja á leikskólanum - við fórum í foreldraviðtal á fimmtudaginn. Við fengum að heyra að hún væri rosalega dugleg og allt bara rosalega jákvætt og við alveg í skýjunum. Henni finnst samt soldið erfitt ennþá að rekast á mig og verður frekar fúl þegar ég þarf síðan að kveðja aftur. Hún þarf bara að læra á þetta sem fyrst
Við fórum í síðbúið afmæli hjá Iðunni áðan og mín tók upp á því að vera rosalega feimin og þykjast ekkert vilja með fólkið hafa. Og mikið skelfing sem henni fannst Kolur hryllilegur! Eiginlega bara ógeðslegur - ef ég á að segja eins og er! Hún jafnaði sig nú fljótlega sem betur fer en þetta var samt dálítið skondið!
Á morgun förum við svo loksins loksins í ofnæmisprófið. Það verður fínt að fá þessa hluti á hreint upp á það ef hún fær aftur í eyrun á næstunni og svona. Það er samt ekki laust við það að ég sé með hnút í maganum en vonandi gengur þetta bara allt saman vel!
Jæja - það er svosem ekkert merkilegt í fréttum. Jú - mér telst til að stúlkan sé komin með hvorki fleiri né færri en þrettán tennur. Mér finnst það nú bara alveg dágóður slatti í ekki stærri munn! En látum þetta gott heita í bili - þið heyrið svo bara síðar hvernig prófið fór…