2.í afmæli
2.í afmæli var í dag en byrjaði ekki alveg nógu skemmtilega því strax í nótt var orðið ljóst að pabbinn á bænum myndi missa af veislunni þar sem að umgangspest kennd við ælu var komin í heimsókn á heimilið! Aðalmanneskjan og mamma hennar hinsvegar mættu hressar og kátar í afmælisveisluna sem var haldin hjá ömmu&afa í Kópavogi.
Saga Guðrún hélt uppteknum hætti og var besta barnið á bænum - naut athyglinnar í botn þó hún hafi verið pínulítið rugluð í öllum þessum ömmum og öfum! Hún fékk aldeilis fínar gjafir - meira að segja baby born dúkku eins og stór stelpa og var rosalega hrifin! Verst að kraftarnir eru ekki alveg nógu miklir í þessum 1 árs kroppi til að ráða við dúkkuna en hún skemmti sér hið besta við að reyna að gefa henni bæði pela og mat og sá til þess að prufukeyra allt á sjálfri sér fyrst! Aldeilis til fyrirmyndar þessi litla kona! Hún fékk líka föt, duplo, bækur - meira að segja eina sem var gefin út árið 1940 og er núna í öruggri vörslu okkar foreldranna, síðan fékk hún líka hálsmen sem langafi Gettu smíðaði og verður það einnig geymt á góðum stað þar til hún verður fær um að nota það!
Daman fékk svo skyr að borða í kvöldmatinn og gleypti það í sig með bestu lyst en þetta er amk í fyrsta sinn sem hún borðar skyr hérna heima. Eftir kvöldmatinn fór mín kona svo bara að skæla og var síðan komin í draumalandið rétt rúmlega sjö enda mikið sem gengið hefur á þessa helgi! Hún sofnaði sko fyrir 20 í gærkvöldi líka og ég vakti hana kl. 10 í morgun. Hún verður vonandi sæl og ánægð að fara til Jóhönnu í fyrramálið og vonandi skýrist það líka á morugn hvenær hún byrjar á leikskólanum