1.sti í afmæli
Daman átti aldeilis góðan dag! Reyndar kom það dálítið á hana í dag þegar hjálparkokkarnir okkar þau Steinunn&Halli komu og færðu henni pakka að hún brast bara í grát og kúrði sig í fangið á Steinunni en jafnaði sig nú fljótt og reif upp pakkann
Hún var alveg óóóótrúlega góð og bara alveg alsæl með alla þessa gesti og alla þessa athygli. Hún var líka bara endalaust sæt og fín - með tíkó í hárinu og hvítan borða
Saga Guðrún fékk fullt af pökkum og var alveg alsæl! Löggubíll frá ömmu&afa í Kópavoginum & dúkkan frá Beintu Mariu & Levi stóðu sko alveg upp úr hjá henni - voðalega lítið annað sem komst að!
Hún fékk alvöru útigalla sem er auðvitað nauðsynlegt þegar maður er alveg að fara að byrja á leikskóla ;), svo fékk hún fullt af leikföngum, bókum og allskonar pökkum
Hún þurfti nú alveg talsverða hjálp við þá en þetta hafðist allt á endanum! Anna Petrea varð svo eftir hjá okkur með Steinunni og þær stöllurnar horfðu á Söngvaborg og léku með dótið og höfðu það notalegt þar til að litla afmælisstelpan datt út fyrir klukkan átta.
Núna erum við Óli að leggja lokahönd á undirbúning fyrir 2.í afmæli sem er á morgun í Kópavoginum en það er nú töluvert mikið minna umstang. Ég skrifa svo kannski meira eftir veisluna á morgun
Það eru auðvitað líka komnar inn afmælismyndir - 5 síður hvorki meira né minna og bætast áreiðanlega við á morgun
Röðin brenglaðist nú aðeins en samt skila þær sínu!