1 árs afmælisstelpa :)

Þá er aðalskutlan í bænum orðin 1 árs í dag :) Hún vaknaði hress og kát og ákvað að fagna deginum með því að labba út um allt - í fyrsta skipti sem hún kýs frekar að labba en skríða! Hún var bara að bíða eftir þessum merkisdegi til að sýna þessar listir sínar svo við myndum ekki gleyma :) Hér verður svo veisla í dag og önnur á morgun :) Það er svo engin hætta á öðru en að það verði settar inn fleiri fréttir á næstunni :)

4 athugasemdir við “1 árs afmælisstelpa :)”

  1. Viktoría Mörk skrifaði:

    Til hamingju með daginn elsku Saga Guðrún!
    Vona að þú njótir hans í botn :)

  2. Ágústa skrifaði:

    Til hamingju með daginn sæta skvísa! Rosalega líður timinn!

  3. Sandra Ósk skrifaði:

    Er virkilega liðið ár síðan ég sat heima og beið eftir fréttum af þessari ótrúlegu stelpu??

    Til hamingju með afmælið Saga sætasta, mikið sakna ég þín… Góða skemmtun í dag :)

  4. Dísa skrifaði:

    Til hamingju með afmælið litla dúlla… mikið líður tíminn hratt ;)