Bara 6 dagar…

Það er sko laglega búið að vera fjör hjá mér síðan við skrifuðum síðast! Á fimmtudaginn var ég hjá afa Adda allan daginn á meðan mamma og pabbi voru í skólanum og skemmti mér rosalega vel. Ég fékk að leika með Jónas & Gullu sem eru gömlu dúkkurnar þeirra mömmu og Steinunnar og vildi helst ekki sleppa þeim. Ég meira að segja gaf Gullu að borða með mér og það er svo hentugt að hún er með gat á maganum og fékk því matinn beint í magann! Mömmu fannst það bara fínt að kenna mér svoleiðis strax :) Á föstudaginn fórum við mamma svo og náðum í Steinunni í skólann og ég fór heim með Steinunni svo að mamma gæti farið í sinn skóla og ég hafði það auðvitða rosa gott hjá henni! Hjálpaði henni að taka til og höfðum það svo voða kózý og ég sofnaði bara í fanginu hennar! Pabbi náði svo í mig og við fórum heim að taka meira til :) Þegar mamma var búin í skólanum fórum við til afa Kjartans og ég sýndi honum hvað ég er að verða flink að labba og tala og fiktaði svo í stólnum hans og fannst mest gaman að kveikja og slökkva!
Í gær vorum við svo að stússast allan daginn - fórum út kl.9 og komum eiginlega ekki heim fyrr hálf sjö! Við vorum að skutlast með Óttar Má og fórum svo í fullt af búðum og til Steinunnar og svona og svo á bókasafnið! Ég skoðaði náttúrufræðistofnunina aðeins og mamma og pabbi verða að fara að fræða mig meira um dýr því ég held að fiskarnir segi það sama og fuglarnir! Ég kom samt mjög vel út í fugladeildinni og sagði alveg eins og þeir og urraði síðan eins og refur! Ég lifði mig svo heilmikið inn í Eurovision og fór alltof seint að sofa til að fylgjast með því hvort Abba myndi ekki örugglega vinna!
Í dag var nú líka stuð hjá okkur! Steinunn kom til okkar um hádegi og stuttu seinna mætti Beinta en hún var hjá okkur í dag og síðan kom Ólöf frænka líka! Það var sko meira fjörið! Ég var ekki neitt hrædd við Beintu og valtaði yfir hana - settist meira að segja á hausinn á henni en við skemmtum okkur sko alveg þrusu vel og henni fannst ég voða skemmtileg! Hún var samt mikið hrifnari af Ólöfu enda er hún orðin svo stór - en hún passaði mig nú samt alveg heilmikið! Ólöf passaði okkur nú alveg heilan hellin og Steinunn sat bara og saumaði og mamma var í tölvunni! Hún er nefnilega svo dugleg hún Ólöf! Ég og Beinta erum líka svo rosalega hrifnar af henni - ég er ótrúlega heppin að eiga svona margar flottar frænkur! Ég mátti ekki einu sinni vera að því að sofa og svaf því bara í 30 mín í allan dag! Leví kom síðan að sækja Beintu og mér fannst hann alveg frábær! Ég elska orðið alla krakka og finnst þau alveg æðisleg! Við mamma fórum svo til ömmu og afa í mat og ég er alltaf svo ánægð að koma til þeirra orðið! Sá afa inn um gluggann og skríkti af kæti þar til hann sá mig og svo benti ég mömmu bara snögglega á dyrnar því ég vildi drífa mig inn til að athuga hvort amma væri ekki heima líka! Ég var svo steinsofnuð fyrir átta í kvöld - enda útkeyrð eftir allt þetta fjör og þarf síðan að vakna snemma í fyrramálið því að loksins loksins kemst ég til Jóhönnu dagmömmu aftur! Ég er ekkert búin að fara í tvær og hálfa viku en ég ætla sko að vera rosa dugleg og vera allan daginn!
Jæja - meira sem ég get blaðrað!
Næst þegar þið heyrið í mér verð ég ábyggilega orðin 1 árs :) víííí gaman
Knús og kossar
ykkar
Saga Guðrún

Lokað er fyrir svör.