Kát lítil stelpa :)

Þá er Saga Guðrún loksins orðin eins og hún á að sér að vera! Ég hef ekki getað talið nákvæmlega en mér sýnist á öllu að ástæða vanlíðanarinnar og brjóstaverkfallsins sé sú að hún er búin að fá þrjár augntennur! S.s. komin með 11 tönnslur í það minnsta fyrir 1 árs afmælið sitt! En það er gott að þetta sé gengið yfir og bara 9 stk eftir á næstu mánuðum sem vonandi verða minna mál en þessar augntennur!
Reyndar er hún með sveppasýkingu á bleyjusvæðinu & augnsýkingu en það vildist nú ekki valda henni neinni vanlíðan nema þegar það á að þrífa og bera á svæðin! Hún er hin hressasta - búin að læra fullt af nýjum orðum & kúnstum.
Annars vorum við voða duglegar um helgina - fórum að horfa á Iðunni & Ara keppa og hún skemmti sér hið besta, fórum í afmæli til Tinnu þar sem hún lék á alls oddi. Á sunnudaginn fórum við svo að versla með ömmu&afa og í heimsókn til þeirra og vorum svo í mat hjá ömmu í Kópavoginum. Ég er ekki frá því að henni hafi líka verið farið að leiðast að hanga heima með mömmu og pabba. Hún er reyndar enn í þeim pakkanum í bili - var reyndar með afa Adda í gær en annars með okkur því dagmamman er veik :( Vonandi fer lífið að komast í fastar skorður hjá okkur - komið nóg af seinheppni og veikindum í bili og hægt að fara að hlakka til afmælisins!

Lokað er fyrir svör.