Eymingjans stelpan :(
Hún Saga Guðrún á ofboðslega erfiða daga núna! Hún er búin að vera með hitaslæðing, grætur allar nætur og virðist bara vera steinhætt á brjósti…eða hún biður um það en vill síðan ekkert drekka og grætur sárt. Hún hefur ekki sofið nema mjög illa í heila viku núna og er svo lítil og aum! Hún hefur bara verið heima í rólegheitunum og reynt að sofa og hvíla sig … Hún fór reyndar til dagmömmunnar í dag og gekk vel enda búin að svelta sig meira og minna hérna heima - vill núna ekki einu sinni brjóstamjólkina og borðaði tvær skálar af hafragraut hjá dagmömmunni! En svo veiktist dagmamman og hún var komin heim fyrir 10 litla skinnið!
Ein af ástæðunum fyrir þessari vanlíðan er ábyggilega tönnslurnar því á mánudaginn fannst augntönn í efri gómi. Meira vitum við ekki því það er ekki sýking eða neitt í eyrunum og voða lítið hægt að sjá. Hún var samt nokkuð kát í dag þegar Iðunn frænka kom að leika við hana þó hún sé auðvitað alltaf sama mömmustelpan. Svo vonandi verður hún hress um helgina því við erum boðin í þrjú afmæli og langar rosalega að kíkja á Iðunni&Ara að keppa og ýmislegt fleira sem þarf að gera. Svo er farið að styttast í stórafmælið - aðeins 16 dagar í afmæli