Laaasin :(
Tveimur dögum eftir að hún hætti á sýklalyfjunum er hún orðin lasin aftur
Var komin með 39+ í gær og þakin útbrotum! Kíktum á læknavaktina vegna útbrotanna og þaðer tvennt sem kemur til greina. Annað hvort bara einhver vírus en lækninum fannst töluvert líklegra að þetta væri pensillín ofnæmi. Við eigum að fara með hana í ofnæmispróf þegar að hún verður orðin hress til að reyna að útiloka það. Svo gerir náttúrulega blóðleysið það að verkum að hún er mikið viðkvæmari fyrir öllum sýkingum og þess vegna sennilega rokin upp í hita aftur!
Annars á hún bara ferlega bágt - hitinn er töluvert lægri en hann var núna síðast en hún er samt svo miklu lasnari! Líður svo illa að hún grætur bara og grætur og vill ekkert borða eða drekka - ekki einu sinni brjóst og þá er Saga Guðrún slöpp! Litla greyið mitt
Ég held að ég ætti að reyna að sofa - enda var ekki sofnað almennilega hér fyrr en eftri 6 í morgun