22.dagar í afmæli :)
Saga Guðrún er orðin bara frekar hress - sýklalyfjakúrnum lokið og ég er ekki frá því að daman sé að fá smá matarlyst enda hefur gengið ágætlega að minnka brjóstagjöfina síðan hún varð hress. Hún er orðin alveg sjúk í bláber - finnst æði að borða þau sjálf og svo fær hún þau líka út í jógúrt og er sæl og ánægð með það!
Það eru líka ótrúlegar framfarir hjá skottunni minni þessa dagana. Hún er farin að tala meira og meira og ávarpar okkur alltaf með sínu eigin nafni og heyrist oft kalla það út í loftið
Enda veit hún vel að hún er aðalmanneskjan - sem við tölum heilan helling um og vill bara leggja orð í belg! Svo er hún farin að labba þegar maður tekur á móti henni - tekur alveg fjöldan allan af skrefum ef hún veit að hún lendir í höndunum á einhverjum sem er vel treystandi að hennar mati. Hún er líka alltaf að segja ný orð - hættu og skór bættust í safnið í vikunni! Svo hefur hún rifjað upp kynni sín við orðið pabbi og laumar því út úr sér af og til, pabba hennar til mikillar ánægju!
Saga sæta er líka búin að fara tvisvar sinnum á leikskólann minn í heimsókn. Svona miðað við hvernig dagmömmustússið hefur gengið held ég að hún hafi bara gott af því að hafa komið þarna inn og kannski átt einhverjar jákvæðar minningar þaðan þegar hún kemst svo þarna inn. Í dag var hún með á vinastund og dansaði og hló og reyndi að stinga af. Svo heimsóttum við líka yngstu deildina en þar voru allir að fara að sofa svo við ætlum að kíkja bara aftur seinna og hitta krakkana og svona!
Það eru líka bara 22 dagar í afmæli
Ótrúlegt en satt - fyrir ári síðan sat ég bara stór og feit og taldi niður dagana…