Skjalasafn fyrir október, 2005

2.í afmæli

31. október, 2005

2.í afmæli var í dag en byrjaði ekki alveg nógu skemmtilega því strax í nótt var orðið ljóst að pabbinn á bænum myndi missa af veislunni þar sem að umgangspest kennd við ælu var komin í heimsókn á heimilið! Aðalmanneskjan og mamma hennar hinsvegar mættu hressar og kátar í afmælisveisluna sem var haldin hjá ömmu&afa í Kópavogi.
Saga Guðrún hélt uppteknum hætti og var besta barnið á bænum - naut athyglinnar í botn þó hún hafi verið pínulítið rugluð í öllum þessum ömmum og öfum! Hún fékk aldeilis fínar gjafir - meira að segja baby born dúkku eins og stór stelpa og var rosalega hrifin! Verst að kraftarnir eru ekki alveg nógu miklir í þessum 1 árs kroppi til að ráða við dúkkuna en hún skemmti sér hið besta við að reyna að gefa henni bæði pela og mat og sá til þess að prufukeyra allt á sjálfri sér fyrst! Aldeilis til fyrirmyndar þessi litla kona! Hún fékk líka föt, duplo, bækur - meira að segja eina sem var gefin út árið 1940 og er núna í öruggri vörslu okkar foreldranna, síðan fékk hún líka hálsmen sem langafi Gettu smíðaði og verður það einnig geymt á góðum stað þar til hún verður fær um að nota það!
Daman fékk svo skyr að borða í kvöldmatinn og gleypti það í sig með bestu lyst en þetta er amk í fyrsta sinn sem hún borðar skyr hérna heima. Eftir kvöldmatinn fór mín kona svo bara að skæla og var síðan komin í draumalandið rétt rúmlega sjö enda mikið sem gengið hefur á þessa helgi! Hún sofnaði sko fyrir 20 í gærkvöldi líka og ég vakti hana kl. 10 í morgun. Hún verður vonandi sæl og ánægð að fara til Jóhönnu í fyrramálið og vonandi skýrist það líka á morugn hvenær hún byrjar á leikskólanum :)

1.sti í afmæli

29. október, 2005

Daman átti aldeilis góðan dag! Reyndar kom það dálítið á hana í dag þegar hjálparkokkarnir okkar þau Steinunn&Halli komu og færðu henni pakka að hún brast bara í grát og kúrði sig í fangið á Steinunni en jafnaði sig nú fljótt og reif upp pakkann :) Hún var alveg óóóótrúlega góð og bara alveg alsæl með alla þessa gesti og alla þessa athygli. Hún var líka bara endalaust sæt og fín - með tíkó í hárinu og hvítan borða :D Saga Guðrún fékk fullt af pökkum og var alveg alsæl! Löggubíll frá ömmu&afa í Kópavoginum & dúkkan frá Beintu Mariu & Levi stóðu sko alveg upp úr hjá henni - voðalega lítið annað sem komst að!
Hún fékk alvöru útigalla sem er auðvitað nauðsynlegt þegar maður er alveg að fara að byrja á leikskóla ;), svo fékk hún fullt af leikföngum, bókum og allskonar pökkum :) Hún þurfti nú alveg talsverða hjálp við þá en þetta hafðist allt á endanum! Anna Petrea varð svo eftir hjá okkur með Steinunni og þær stöllurnar horfðu á Söngvaborg og léku með dótið og höfðu það notalegt þar til að litla afmælisstelpan datt út fyrir klukkan átta.
Núna erum við Óli að leggja lokahönd á undirbúning fyrir 2.í afmæli sem er á morgun í Kópavoginum en það er nú töluvert mikið minna umstang. Ég skrifa svo kannski meira eftir veisluna á morgun :) Það eru auðvitað líka komnar inn afmælismyndir - 5 síður hvorki meira né minna og bætast áreiðanlega við á morgun :) Röðin brenglaðist nú aðeins en samt skila þær sínu!

1 árs afmælisstelpa :)

29. október, 2005

Þá er aðalskutlan í bænum orðin 1 árs í dag :) Hún vaknaði hress og kát og ákvað að fagna deginum með því að labba út um allt - í fyrsta skipti sem hún kýs frekar að labba en skríða! Hún var bara að bíða eftir þessum merkisdegi til að sýna þessar listir sínar svo við myndum ekki gleyma :) Hér verður svo veisla í dag og önnur á morgun :) Það er svo engin hætta á öðru en að það verði settar inn fleiri fréttir á næstunni :)

Bara 6 dagar…

23. október, 2005

Það er sko laglega búið að vera fjör hjá mér síðan við skrifuðum síðast! Á fimmtudaginn var ég hjá afa Adda allan daginn á meðan mamma og pabbi voru í skólanum og skemmti mér rosalega vel. Ég fékk að leika með Jónas & Gullu sem eru gömlu dúkkurnar þeirra mömmu og Steinunnar og vildi helst ekki sleppa þeim. Ég meira að segja gaf Gullu að borða með mér og það er svo hentugt að hún er með gat á maganum og fékk því matinn beint í magann! Mömmu fannst það bara fínt að kenna mér svoleiðis strax :) Á föstudaginn fórum við mamma svo og náðum í Steinunni í skólann og ég fór heim með Steinunni svo að mamma gæti farið í sinn skóla og ég hafði það auðvitða rosa gott hjá henni! Hjálpaði henni að taka til og höfðum það svo voða kózý og ég sofnaði bara í fanginu hennar! Pabbi náði svo í mig og við fórum heim að taka meira til :) Þegar mamma var búin í skólanum fórum við til afa Kjartans og ég sýndi honum hvað ég er að verða flink að labba og tala og fiktaði svo í stólnum hans og fannst mest gaman að kveikja og slökkva!
Í gær vorum við svo að stússast allan daginn - fórum út kl.9 og komum eiginlega ekki heim fyrr hálf sjö! Við vorum að skutlast með Óttar Má og fórum svo í fullt af búðum og til Steinunnar og svona og svo á bókasafnið! Ég skoðaði náttúrufræðistofnunina aðeins og mamma og pabbi verða að fara að fræða mig meira um dýr því ég held að fiskarnir segi það sama og fuglarnir! Ég kom samt mjög vel út í fugladeildinni og sagði alveg eins og þeir og urraði síðan eins og refur! Ég lifði mig svo heilmikið inn í Eurovision og fór alltof seint að sofa til að fylgjast með því hvort Abba myndi ekki örugglega vinna!
Í dag var nú líka stuð hjá okkur! Steinunn kom til okkar um hádegi og stuttu seinna mætti Beinta en hún var hjá okkur í dag og síðan kom Ólöf frænka líka! Það var sko meira fjörið! Ég var ekki neitt hrædd við Beintu og valtaði yfir hana - settist meira að segja á hausinn á henni en við skemmtum okkur sko alveg þrusu vel og henni fannst ég voða skemmtileg! Hún var samt mikið hrifnari af Ólöfu enda er hún orðin svo stór - en hún passaði mig nú samt alveg heilmikið! Ólöf passaði okkur nú alveg heilan hellin og Steinunn sat bara og saumaði og mamma var í tölvunni! Hún er nefnilega svo dugleg hún Ólöf! Ég og Beinta erum líka svo rosalega hrifnar af henni - ég er ótrúlega heppin að eiga svona margar flottar frænkur! Ég mátti ekki einu sinni vera að því að sofa og svaf því bara í 30 mín í allan dag! Leví kom síðan að sækja Beintu og mér fannst hann alveg frábær! Ég elska orðið alla krakka og finnst þau alveg æðisleg! Við mamma fórum svo til ömmu og afa í mat og ég er alltaf svo ánægð að koma til þeirra orðið! Sá afa inn um gluggann og skríkti af kæti þar til hann sá mig og svo benti ég mömmu bara snögglega á dyrnar því ég vildi drífa mig inn til að athuga hvort amma væri ekki heima líka! Ég var svo steinsofnuð fyrir átta í kvöld - enda útkeyrð eftir allt þetta fjör og þarf síðan að vakna snemma í fyrramálið því að loksins loksins kemst ég til Jóhönnu dagmömmu aftur! Ég er ekkert búin að fara í tvær og hálfa viku en ég ætla sko að vera rosa dugleg og vera allan daginn!
Jæja - meira sem ég get blaðrað!
Næst þegar þið heyrið í mér verð ég ábyggilega orðin 1 árs :) víííí gaman
Knús og kossar
ykkar
Saga Guðrún

Kát lítil stelpa :)

18. október, 2005

Þá er Saga Guðrún loksins orðin eins og hún á að sér að vera! Ég hef ekki getað talið nákvæmlega en mér sýnist á öllu að ástæða vanlíðanarinnar og brjóstaverkfallsins sé sú að hún er búin að fá þrjár augntennur! S.s. komin með 11 tönnslur í það minnsta fyrir 1 árs afmælið sitt! En það er gott að þetta sé gengið yfir og bara 9 stk eftir á næstu mánuðum sem vonandi verða minna mál en þessar augntennur!
Reyndar er hún með sveppasýkingu á bleyjusvæðinu & augnsýkingu en það vildist nú ekki valda henni neinni vanlíðan nema þegar það á að þrífa og bera á svæðin! Hún er hin hressasta - búin að læra fullt af nýjum orðum & kúnstum.
Annars vorum við voða duglegar um helgina - fórum að horfa á Iðunni & Ara keppa og hún skemmti sér hið besta, fórum í afmæli til Tinnu þar sem hún lék á alls oddi. Á sunnudaginn fórum við svo að versla með ömmu&afa og í heimsókn til þeirra og vorum svo í mat hjá ömmu í Kópavoginum. Ég er ekki frá því að henni hafi líka verið farið að leiðast að hanga heima með mömmu og pabba. Hún er reyndar enn í þeim pakkanum í bili - var reyndar með afa Adda í gær en annars með okkur því dagmamman er veik :( Vonandi fer lífið að komast í fastar skorður hjá okkur - komið nóg af seinheppni og veikindum í bili og hægt að fara að hlakka til afmælisins!

Eymingjans stelpan :(

13. október, 2005

Hún Saga Guðrún á ofboðslega erfiða daga núna! Hún er búin að vera með hitaslæðing, grætur allar nætur og virðist bara vera steinhætt á brjósti…eða hún biður um það en vill síðan ekkert drekka og grætur sárt. Hún hefur ekki sofið nema mjög illa í heila viku núna og er svo lítil og aum! Hún hefur bara verið heima í rólegheitunum og reynt að sofa og hvíla sig … Hún fór reyndar til dagmömmunnar í dag og gekk vel enda búin að svelta sig meira og minna hérna heima - vill núna ekki einu sinni brjóstamjólkina og borðaði tvær skálar af hafragraut hjá dagmömmunni! En svo veiktist dagmamman og hún var komin heim fyrir 10 litla skinnið!
Ein af ástæðunum fyrir þessari vanlíðan er ábyggilega tönnslurnar því á mánudaginn fannst augntönn í efri gómi. Meira vitum við ekki því það er ekki sýking eða neitt í eyrunum og voða lítið hægt að sjá. Hún var samt nokkuð kát í dag þegar Iðunn frænka kom að leika við hana þó hún sé auðvitað alltaf sama mömmustelpan. Svo vonandi verður hún hress um helgina því við erum boðin í þrjú afmæli og langar rosalega að kíkja á Iðunni&Ara að keppa og ýmislegt fleira sem þarf að gera. Svo er farið að styttast í stórafmælið - aðeins 16 dagar í afmæli :o

Laaasin :(

10. október, 2005

Tveimur dögum eftir að hún hætti á sýklalyfjunum er hún orðin lasin aftur :( Var komin með 39+ í gær og þakin útbrotum! Kíktum á læknavaktina vegna útbrotanna og þaðer tvennt sem kemur til greina. Annað hvort bara einhver vírus en lækninum fannst töluvert líklegra að þetta væri pensillín ofnæmi. Við eigum að fara með hana í ofnæmispróf þegar að hún verður orðin hress til að reyna að útiloka það. Svo gerir náttúrulega blóðleysið það að verkum að hún er mikið viðkvæmari fyrir öllum sýkingum og þess vegna sennilega rokin upp í hita aftur!
Annars á hún bara ferlega bágt - hitinn er töluvert lægri en hann var núna síðast en hún er samt svo miklu lasnari! Líður svo illa að hún grætur bara og grætur og vill ekkert borða eða drekka - ekki einu sinni brjóst og þá er Saga Guðrún slöpp! Litla greyið mitt ;) Ég held að ég ætti að reyna að sofa - enda var ekki sofnað almennilega hér fyrr en eftri 6 í morgun :(

22.dagar í afmæli :)

8. október, 2005

Saga Guðrún er orðin bara frekar hress - sýklalyfjakúrnum lokið og ég er ekki frá því að daman sé að fá smá matarlyst enda hefur gengið ágætlega að minnka brjóstagjöfina síðan hún varð hress. Hún er orðin alveg sjúk í bláber - finnst æði að borða þau sjálf og svo fær hún þau líka út í jógúrt og er sæl og ánægð með það!
Það eru líka ótrúlegar framfarir hjá skottunni minni þessa dagana. Hún er farin að tala meira og meira og ávarpar okkur alltaf með sínu eigin nafni og heyrist oft kalla það út í loftið :) Enda veit hún vel að hún er aðalmanneskjan - sem við tölum heilan helling um og vill bara leggja orð í belg! Svo er hún farin að labba þegar maður tekur á móti henni - tekur alveg fjöldan allan af skrefum ef hún veit að hún lendir í höndunum á einhverjum sem er vel treystandi að hennar mati. Hún er líka alltaf að segja ný orð - hættu og skór bættust í safnið í vikunni! Svo hefur hún rifjað upp kynni sín við orðið pabbi og laumar því út úr sér af og til, pabba hennar til mikillar ánægju!
Saga sæta er líka búin að fara tvisvar sinnum á leikskólann minn í heimsókn. Svona miðað við hvernig dagmömmustússið hefur gengið held ég að hún hafi bara gott af því að hafa komið þarna inn og kannski átt einhverjar jákvæðar minningar þaðan þegar hún kemst svo þarna inn. Í dag var hún með á vinastund og dansaði og hló og reyndi að stinga af. Svo heimsóttum við líka yngstu deildina en þar voru allir að fara að sofa svo við ætlum að kíkja bara aftur seinna og hitta krakkana og svona!
Það eru líka bara 22 dagar í afmæli :o Ótrúlegt en satt - fyrir ári síðan sat ég bara stór og feit og taldi niður dagana…