Skjalasafn fyrir september, 2005

Lyfjastúss :(

28. september, 2005

Þá er daman komin á sýklalyf við eyrnabólgunni :( Henni finst það nú alveg bara mjög gott ennþá a.m.k. og smjattar á því með bestu lyst. Það kom ekkert út úr þvagprufunni hennar - allt í þessu fína þar. Læknirinn tók svo blóðprufu úr puttanum og þá kom í ljós að blóðgildið er allt of lágt. Hún þarf því líka að fara á járnkúrnúna í ca. þrjá mánuði og athuga hvort það lagist ekki eitthvað. Svo út af því hvernig hægðamálin hennar hafa gengið hingað til ráðlagði læknirinn okkur að gefa henni hægðalyfin bara með járninu til að fyrirbyggja það að hún færi aftur inn í sama vítahringinn.
Annars er allt svipað og í gær. Hún er ennþá með hita og er alveg hress á meðan honum er haldið niðri en svo er allt ómögulegt og ferlega erfitt þegar hann rýkur upp :( Nú er bara stefnan að vera dugleg að taka þessi lyf og láta sér batna!

Enn og aftur lasin stelpa

27. september, 2005

Jæja þá er hún Saga Guðrún komin með í eyrun. Eins og pabbi hennar sagði “loksins!” Ég er kannski búin að vera pínu fanatísk á eyrnabólgur en það hefur sínar ástæður. Hún er með í hægra eyranu en það vinstra er svo gott sem eðlilegt. Hún er líka með hálsbólgu en hvorugt af þessu útskýrir af hverju hún rauk upp í 40 stiga hita í gær! Hún vaknaði líka með háan hita og það tók stílana alveg þrjá tíma að ná hitanum niður fyrir 39. Við erum núna að berjast við að ná þvagprufu því læknirinn vildi útiloka að hún væri með þvagfærasýkingu sem myndi þá útskýra þennan hita í henni. Við þurfum að ná þessari prufu í dag & svo förum við aftur til læknis í fyrramálið. Þá verður ákveðið hvort að hún þarf sýklalyf við þvagfærasýkingu eða við eyrnabólgunni!
Ekkert mjög skemmtilegt ástand hérna búið að vera en svona er þetta. Vonandi hressist hún fljótt litla skinnið svo hún komist til dagmömmunar! Hún fer nefnilega að verða svolítið svöng á því að hanga heima :)

25. september, 2005

Það er bara allt fínt að frétta! Ég er alveg löngu orðin hress en ennþá með smá kvef og ljótan hósta en þetta er allt á réttri leið! Mér er búið að leiðast dáldið síðustu vikuna því þegar ég varð hress þá voru mamma&pabbi bæði lasin og mamma greyið er búin að vera lasin lengur en ég.
Ég var alveg þokkaleg hjá dagmömmunni þessa viku - nema á föstudaginn sótti mamma mig fyrr því ég borðaði svo mikið að ég var að springa. Ég er nefnilega eiginlega hætt að leggja mig á morgnana og ætla bara að fá mér lúr þegar ég kem heim frá dagmömmunni. Ég var reyndar líka veik heima á miðvikudeginum því ég gubbaði um nóttina og svona … en Halli&afi Addi komu að passa mig og ég hafði það bara rosa gott. Auðvitað var þetta fyrsti dagurinn sem mamma átti að vera að vinna ;) Í dag erum við mamma að fara að hitta nokkra október-krakka og mömmur þeirra og á morgun er frí hjá dagmömmunni og ég ætla að vera heima með pabba.
Ekkert meira að segja í bili - en gestabókin bítur ekki neitt ;)

Lítil lasin lús

17. september, 2005

Mér virðist vera að batna af augnsýkingunni en mér finnst mamma og pabbi ömurlega leiðinleg að setja dropa í augun á mér :( Núna er ég hinsvegar komin með kvef og hálsbólgu, fullt af hori og ljótan hósta. Ég er sem betur fer hitalaus en ég er algjör mömmurófa! Mér líður eiginlega bara alveg ferlega illa! Það var frí hjá dagmömmunni á föstudaginn og ég veit ekki hvort ég geti farið á mánudag. Mér verður þá allavega að batna helling! Mér verður að vera batnað fyrir miðvikudaginn því mamma kellingin fékk sér nefnilega vinnu á meðan ég er hjá dagmömmunni!

Ég er ekkert búin að skrifa hvað það var ofsalega gaman hjá mér um seinustu helgi! Ég & mamma & pabbi fórum í sumarbústað í Brekkuskógi með ömmu & afa. Það var roooosalega notalegt og mér fannst sko algjört æði að hafa ömmu & afa hjá mér allan þennan tíma. Afi kenndi mér að labba up stiga :shock: og ég var rosa dugleg. Fór sjálf upp á svefnloft og alveg sjálf upp kastalann á leikvellinum. Ég var dugleg að leika mér úti og borðaði eins og hestur þegar ég var búin að því! Ég þarf greinilega bara að vera á fullu allan daginn til að borða! Mamma & pabbi eru rooosalega þreytt á að gefa mér að borða því ég borða alltaf bara þrjár skeiðar og er svo orðin pirruð og hætti. Svo hjá dagmömmunni er ég rosalega dugleg að borða!

Ég er farin að vera rosalega dugleg við að tala og skil alveg fullt. Nýjasta er að ef mamma spyr mig hvort ég vilji brjóst þá byrja ég að smjatta og slá á brjóstið hennar :) Rosalega krúttlegt hjá mér :) Svo segi ég Saga voða oft og mamma er alveg viss um að ég segi Steinunn - ég nota það bara ekki rétt. Ég þekki sko alveg Steinunn, Halli, afi, pabbi, mamma og svo Óli :) Jæja þetta er nóg í bili

Kveðja
Saga pirraða

Augnsýking :(

14. september, 2005

Núna er ég komin alveg svakalega sýkingu í bæði augun :( Það byrjaði á sunnudaginn að mamma fór að taka eftir auknum stírum og svona en ekkert alvarlegt. Svo horfði mamma bara á augað mitt fyllast af greftri og bólgna og roðna á tveimur tímum í dag :cry: Við fórum á Læknavaktina og fengum dropa í augun - þegar við lögðum af stað var sýkingin bara í öðru auganu en þegar við komum heim var þetta komið í bæði :( Ég á rosalega bágt - fyrst þurfti að þrífa augun og svo setja dropa og ég varð svo reið! Svo sofnaði ég en var alltaf að vakna hágrátandi því ég gat ekki opnað augun mín - svo ég fékk að kúra í mömmu og pabba fangi til skiptis :blush: Ég er líka ennþá með niðurgang :( 9ndi dagurinn í dag og mamma búin að gefa mér goslaust 7up og Gatorade í dag en ég þarf að fara aftur til læknis á morgun ef að þetta verður ekki búið! Æææi, það er svo erfitt að vera til á svona dögum :(

Duglegust!

9. september, 2005

Fyrst: það eru komnar nýjar myndir í Steinaalbúmið
Núna er ég farin að vera alla 4 tímana hjá dagmömmunni minni og líkar það rosalega vel. Ég skæli auðvitað pínu þegar ég er skilin eftir og þegar ég er sótt en er voða góð inn á milli! Borða vel og sofna svo bara í vagninum mínum og er bara alveg þrusudugleg segir mamma! Hún hefði nefnilega alveg eins átt von á því að ég myndi verða brjáluð í lengri tíma! Ussuss, hún er nú rugluð! Ég er líka strax orðin miklu spenntari fyrir krökkum sem ég sé - t.d. fannst mér voða gaman að hitta Önnu Petreu í vikunni en ég hef aldrei sýnt henni neinn sérstakan áhuga! Æi svo er ég búin að vera með í maganum alla vikuna og kúkaði alveg endalaust oft í nótt svo mamma og pabbi voru alveg stjörf af þreytu í morgun :blush: Mamma ætlar að tala við lækni til að athuga með mig í dag.
Knúsogkossar
Saga sætasta Guðrún

Brjáluð helgi :)

5. september, 2005

Það er sko ekki búið að vera neitt lítið að gera hjá okkur um helgina :shock: Við fórum út í hádeginu í gær laugardag og komum eiginlega bara ekkert heim fyrr en um 14 í dag. Jú auðvitað komum við til að sofa og svona! Við fórum til ömmu&afa í gær og pabbi fékk lánaða spýtu til að loka eldhúsinu af fyrir mér :confused: Ég skil ekki hvaða vitleysa það er … mér finnst svo gaman að vera í eldhúsinu! Svo fórum við á opnunarhátíð í vinnunni hjá ömmu Eddu og mér fannst alveg rosa gaman að horfa á allskonar þjóðdansa. Mér fannst konurnar frá Tælandi í alveg svakalega flottum búningum - með rosa kórónur og allt :lol: Eftir opnunarhátíðina fórum við á svona hálfgert ættarmót - en langalangamma mín hefði orðið hundrað ára og þetta voru allir afkomendur hennar. Ég er svo heppin stelpa - Kolbrún Arna & Drífa löbbuðu alveg endalaust um með mig og ég var ekkert feimin og náði heldur betur að heilla ættingjana upp úr skónum. Mamma&pabbi fóru svo eiginlega beint í afmæli en afi&Iðunn komu að passa mig. Það byrjaði með ósköpum - ég hvolfdi yfir mig stól :cry: og brá svo skelfilega. Svo vissi ég ekkert hvar ég vildi vera … flakkaði á milli þeirra en sofnaði svo að lokum í fanginu hans afa og svaf eins og engill þar til að mamma kom heim. Ég var líka rosalega glöð að vakna í morgun og Iðunn mín var ennþá hjá mér :) Við fórum svo fljótlega að horfa á Maju pæju keppa í fótbolta - ég var ekkert voðalega spennt - reyndi að veifa stelpunum þarna inni á vellinum og var hæstánægð þegar þær skoruðu því þá klöppuðu allir fyrir mér :blush: eða það hélt ég. Þegar við komum til baka komu svo vinir mínir í heimsókn - Darri Jökull, Tinna Mjöll & Róbert Máni og það var sko fjör á bænum. Ég þóttist vera voða góð og var ótrúlega stillt og prúð og pínu vælin eins og alltaf! Tinna Mjöll settist á bakið á mér & Darri Jökull á höndina á mér en það var allt í lagi :) Tinna Mjöll er orðin svo klár að standa að eftir að hún fór heim er ég búin að æfa mig ennþá meira en venjulega! Mamma er viss um að við lærum af hvor annarri! En þegar strákarnir voru farnir heim breyttist ég aftur í Söguna sem mamma&pabbi þekkja svo vel og lék á alls oddi með Tinnu - tók af henni snuðið og allskonar!
Vá hvað þetta er búin að vera erfið helgi 8) - á morgun fer ég svo aftur til dagmömmunnar og svo ætla ég að fara með mömmu að læra :shock: Kveðja
Saga Guðrún sætalús

Duglega stelpan mín :D

2. september, 2005

Við eigum svooo duglega stelpu :) Hún tók fyrstu skrefin sín núna í vikunni - og við ekkert smá stolt! Sjálfri varð henni svo mikið um að hún pompaði á rassinn þegar hún uppgötvaði hvað hún var að gera :shock: Hún er nú ekki alveg til í að endurtaka þau núna en getur það greinilega. Svo er bara að sjá hvað hún gerir við þessa nýju kunnáttu sína :) Svo er hún búin að fara til dagmömmunnar alla þessa viku! Hún var sæmilega stillt fyrsta daginn en svo var hún frekar reið og óánægð með þetta næstu tvo daga. Í dag var hún samt í alveg einn og hálfan tíma - fór út að leika og allt og var bara sátt. Hún skældi alveg pínu og lét vita að sér mislíkaði en var alls ekkert óhuggandi. Svona er maður nú orðinn stór :) Svo er bara að sjá hvað tekur við eftir helgina - vonandi heldur hún áfram að vera svona dugleg! Hún var nú líka alveg úrvinda eftir þennan eina og hálfa tíma í dag og steinsofnaði um leið og hún kom heim :) Adios
Stoltasta mamma í geimnum