Allt brjálað á bænum :)
Núna erum við mæðgur búnar að vera latar að skrifa
Ég er alltaf sama prinsessan og ég er orðin alveg gjörsamlega mömmusjúk! Ég er eiginlega bara til vandræða segir mamma - Steinunn & Halli voru t.d. hjá okkur áðan og ég var hjá þeim á meðan mamma var að reyna að laga til en ég kjökraði bara þegar þau voru ekki alveg á 100 að skemmta mér!
Steina frænka er farin aftur heim til Noregs
Það var svo gott að hafa hana hjá okkur og við söknum hennar sko öll! Mamma getur ekki beðið eftir að fara að plana hvenær við getum farið til hennar í heimsókn - og að hitta Valdemar og hundana.
Um síðustu helgi fórum við á Gay Pride með Steinunni & Iðunni og hittum svo ömmu Eddu og Maríu niður í bæ og vorum með þeim. Það var rosa gaman og ég mátti sko ekki vera að því að sofa neitt! Þetta var allt rosa spennandi - ég fékk svona blómakrans og fána og allt og var rosalega spennt.
Í seinustu viku var Iðunn frænka að passa mig á meðan pabbi var að vinna aðeins í tölvunni og byrja að læra fyrir prófið sem hann er að fara í bráðum. Það gekk alveg eins og í sögu - þó ég hafi að sjálfsögðu passað mig að láta hana hafa mátulega fyrir mér - svo pabbi þurfti stundum að taka í taumana - eins og þegar ég var búin að klínana banana út um allt því ég vildi ekki borða hjá henni. Svo gekk svolítið erfiðlega fyrst að fá mig til að sofa en svo gekk það
Við fórum líka út í garð að leika og lékum alveg helling saman
Núna er Steinunn & Halli líka flutt hérna rétt hjá okkur og mér finnst það sko aldeilis fínt! Ég læt bara eins og ég eigi íbúðina þeirra með húð og hári - mamma og pabbi segja að það sé sko greinilega að þarna líði mér vel því ég er alveg ég sjálf. Ég á það nefnilega til að umturnast þegar við förum héðan út og setja upp mjög alvarlegan svip og þykjast vera afar alvarleg ung kona.
Núna á mamma bara eftir að vinna í eina viku - svo fer hún eina viku í skólann og þá er hún bara komin í kæruleysið hún mamma. Við ætlum að vera saman í einhvern tíma á daginn & svo fer ég, stóra stelpan bara að byrja hjá dagmömmunni
Það verður nú aldeilis fróðlegt að sjá hvernig ég tek því! Ég á nú samt eftir að sakna þess ótrúlega mikið að hafa ekki pabba eða mömmu hjá mér allan daginn en ég þarf nú að læra aðeins að sleppa af þeim höndunum. Og þau auðvitað af mér - ætli það endi ekki á því að þetta veri erfiðara fyrir þau heldur en mig!
Í gær var Ólöf frænka hjá okkur allan daginn og var rosalega dugleg að leika við mig og passa mig. Í dag vorum við svo eiginlega bara allan daginn í Kópavoginum að setja saman fataskáp fyrir Mörtu. Eða pabbi var að setja saman skápinn - mamma skipti sér af og hjálpaði líka aðeins og ég var bara að dúllast og svona með mömmu, ömmu og Mörtu til skiptis. Mér fannst ægilega gaman að fá að máta skápinn … það kom meira segja upp sú hugmynd að þarna gæti ég bara átt sérherbergi þegar ég kem í heimsókn
Við fórum svo til ömmu og afa í mat og ég fékk lambakjöt og kartöflur í kvöldmatinn og borðaði svo vel að ég fékk perumauk í eftirrétt. Um daginn leyfði afi mér að fara út á svalir hjá þeim og ég er alltaf svo spennt að komast þangað núna. Í dag uppgötvaði ég meira að segja hvernig átti að opna hurðina og náði hespunni af … sem betur fer stendur hurðin á sér annars hefði ég flogið út á svalir.
Jæja þetta er nú meiri ritgerðin sem eg er búin að skrifa … þetta er komið ágætt. Þið megið svo endilega - enn einu sinni - vera dugleg við að skrifa í gestabókina og gefa comment
Knús & kossar
15. ágúst 2005 kl.15:29
Hæ hæ snúalln mín!! Mikið sakna ég ykkar líka og ég hlakka svakalega til að þið komið í heimsókn til okkar. Mér fannst svolítið skondið að lesa að þú værir ,,orðin” mömmumstelpa….. hélt að þú hefðir alltaf verið það ;o) híhíhíhíhíhí.
Gott að heyra að þú ert með hlutina á hreinu og ert snjöll við að fá fólk til að dekra við þig ;o)
Knus og klem
Steina frænka og co