Skjalasafn fyrir ágúst, 2005

10 mánaða marblettastelpa

30. ágúst, 2005

Þá er ég orðinn tíu mánaða :shock: Ég er orðin svo stór - byrjuð að sleppa mér alveg helling & byrjuð hjá dagmömmu! Það styttist óðum í að ég byrji að labba … ég er farin að standa óstudd alveg góða stund - eða þar til ég fatta það sjálf - þá pompa ég á rassinn.
Við fórum í 10 mánaða skoðunina í dag og ég held áfram að þyngjast á skjaldbökuhraðanum mínum - ég er samt loksins farin að halda mig í minni kúrfu og hætta þessu rápi. Ég er 8120 gr & 72.5 cm á lengd. Hjúkkunni fannst ég rosa flott að sjálfsögðu og fannst ég ótrúlega dugleg þegar mamma og pabbi sögðu henni frá öllum orðunum sem ég kann.
Mamma er núna bara heima hjá mér í bili því pabbi er byrjaður í skólanum og mér finnst það voða notalegt að vakna með henni. Ég varð samt soldið hissa í morgun að pabbi skildi ekki fara með mig fram og gefa mér morgunmat eins venjulega! Við erum búnar að fara 2x til dagmömmunnar og mamma skildi mig meira að segja eftir í dag í hálftíma. Ég var voða stillt og góð :D þó ég hafi kannski ekkert verið sæl með þetta þá var ég heldur ekkert reið. Ég fer aftur á morgun í stutt stopp - ég ætla svo að vera hjá henni fyrir hádegi og leika við krakkana. Mömmu finnst líka æðislegt að ég fái að sofa úti en það er ekki hægt hérna heima hjá okkur :( Ég svaf rosalega vel úti í sumar þegar við vorum úti á Álftanesi svo þetta verður áreiðanlega mjög fínt.
Ég er öll marin og blá í andlitinu núna! Ég er búin að fá þrjá stóra skelli síðan á sunnudag - einn á dag. Er með tvo stóra marbletti í andlitinu eftir að hafa dottið á stofuborð og stofugólf og svo er ég með risa kúlu á höfðinu eftir smá flugferð úr mömmu&pabba rúmi :blush: En ég er svo mikil prakkarastelpa að þetta fer mér bara alveg ótrúlega vel!

Æ, ó & aumingja ég :(

25. ágúst, 2005

Æi, ég á svo voðalega bágt þessa dagana! Eða það finnst mér! Mamma er búin að vera í skólanum og pabbi var að læra fyrir próf og ég er búin að vera oft í pössun hjá Steinunni&Halla og svo var ég líka hjá ömmu&afa í gær. Þó ég sé voða góð á meðan pössuninni stendur læt ég sko mömmu&pabba alveg vita að mér mislíkar þetta dálítið :( Ég elti mömmu hvert sem hún fer og segi bara mammamammamamma allan daginn. Pabbi er búinn að reyna að loka mig af inn í stofu en ég er svo seig að mér tekst yfirleitt alltaf ætlunarverkið - sem er annað hvort að finna mömmu eða fara inn í vinnuherbergi að róta í pappírunum. Svo er ég ekki dugleg við að sofa og sofnaði ekki almennilega fyrr en milli 4 og 5 í nótt. Þið getið bara ímyndað ykkur hvað mamma var fersk í morgun þegar hún fór í skólann!
Annars er bara allt fínt að frétta. Ég byrja í aðlögun á mánudaginn og fer í 10 mánaða skoðun á þriðjudag. Það er eiginlega ótrúlegt að það séu 10 mánuðir síðan ég fæddist …
Ótrúlega stutt síðan … en samt svo langt! Bara tveir mánuðir í að ég verði eins árs prinsessa! Mömmu & pabba finnst þetta bara rugl - þeim finnst eins og ég hafi fæðst í seinustu viku! Þessir foreldrar :shock: Ég er ekki ennþá farin að vera dugleg að borða en mamma fann samt nýja fæðutegund sem mér finnst æði :) Það eru kjúklingabaunir sem henta rosalega vel fyrir svona sjálfstæðar stelpur eins og mig! Hún ætlar að kaupa fleiri tegundir og leyfa mér að prófa!

:P

22. ágúst, 2005

Í dag er sko aldeils búið að vera fjör og nóg a gera.
Ég fór loksins í sund aftur! Ungbarnasundið er byrjað eftir sumarfrí og það var rosalega gaman. Ég var reyndar pínu óörugg svona og hékk doldið í pabba - en var samt ótrúlega dugleg! Mamma hafði sko alveg rétt fyrir sér - að ég væri orðin mikil færari en ég var! Ég skældi bara einu sinni - kvartaði ekki einu sinni þó ég væri að kafa og ekki neitt! Þetta er allt að koma ;) Eftir sund fórum við til ömmu&afa og hittum Magnús&Óttar. Mér finnst frændsystkinin mín ekkert smá flott og skemmtileg - ég var frekar feimin og fúl við Magnús :wink: en ekki baun í bala við Óttar Má! Síðan fór ég heim að leggja mig og fór svo með mömmu&Steinunni til Önnu Petreu. Við fengum lánað fullt af fötum hjá henni því ég er svo dugleg að stækka og skiluðum þeim sem ég er vaxin upp úr. Það er alltaf svolítið fyndið þegar við hittumst því við þykjumst báðar eiga Steinunni og okkur stendur bara alls ekkert á sama þegar að hún er að tala við og knúsast í hinni :shock: Anna átti fullt af skemmtilegu dóti og svo komst ég í glasið hennar og mamma varð ekkert smá hissa en ég þambaði bara fuuuullt af mjólk með bestu lyst :lol: Ég sem hef bara viljað mömmumjólkina mína hingað til og fundist önnur mjólk ógeðsleg nema úti á grautinn.
Í kvöld komu svo Steinunni, Halli, Simmi & Steini og grilluðu með mömmu&pabba og það var rooosalega gaman hjá mér. Fullt af fólki til að snúa í kringum mig. Að sjálfsögðu tók Steini fullt af myndum af mér ;)
Í gærkvöldi fór ég niður í bæ í vagninum á meðan mamma&pabbi kíktu á mannlífið með Steinunni & Halla. Ég vaknaði svo til að horfa á flugeldasýninguna - en ég var svo skelfilega syfjuð að ég hafði ekki mikið um hana að segja. Það var svo mikið af fólki að fólkið mitt þurfti að mynda varnargarð um vagninn :cry: Svo kom ég mömmu og pabba alveg ofsalega mikið á óvart með að sofa í 6 tíma samfleytt og þau voru bara í sjokki þegar þau vöknuðu :8: Hver veit - kannski fer mér að þóknast að sofa lengur í einu :roll:
Mamma bjó til nýtt albúm undir myndirnar hans Steina og inn í þeim setur hún undir albúm fyrir hvern dag því það eru alltaf svo margar flottar. Nú þegar eru komnir 2 dagar og bætist áreiðanlega í það fljótlega :) Mamma & Steini eru að plotta voða myndatökur - en samt aðallega mamam - hún er svo myndaóð!

Fyrsta klippingin

19. ágúst, 2005

Þá er búið að klippa dömuna í fyrsta skipti :) Við gerum það í kvöld - eða öllu heldur þá klippti Steinunn á meðan ég sá til þess að hún væri ekki með hendurnar í öllu. Hún er náttúrulega bara sætust - strákalegri en hún var en alveg óóóóótrúlega sæt :) Þetta var nú samt bara rétt snyrting og barnið er allt öðruvísi :) Mér finnst hún ofboðslega lík Óttari Má á sama aldri eftir snyrtinguna :P

Allt brjálað á bænum :)

15. ágúst, 2005

Núna erum við mæðgur búnar að vera latar að skrifa :) Ég er alltaf sama prinsessan og ég er orðin alveg gjörsamlega mömmusjúk! Ég er eiginlega bara til vandræða segir mamma - Steinunn & Halli voru t.d. hjá okkur áðan og ég var hjá þeim á meðan mamma var að reyna að laga til en ég kjökraði bara þegar þau voru ekki alveg á 100 að skemmta mér!
Steina frænka er farin aftur heim til Noregs :cry: Það var svo gott að hafa hana hjá okkur og við söknum hennar sko öll! Mamma getur ekki beðið eftir að fara að plana hvenær við getum farið til hennar í heimsókn - og að hitta Valdemar og hundana.
Um síðustu helgi fórum við á Gay Pride með Steinunni & Iðunni og hittum svo ömmu Eddu og Maríu niður í bæ og vorum með þeim. Það var rosa gaman og ég mátti sko ekki vera að því að sofa neitt! Þetta var allt rosa spennandi - ég fékk svona blómakrans og fána og allt og var rosalega spennt.
Í seinustu viku var Iðunn frænka að passa mig á meðan pabbi var að vinna aðeins í tölvunni og byrja að læra fyrir prófið sem hann er að fara í bráðum. Það gekk alveg eins og í sögu - þó ég hafi að sjálfsögðu passað mig að láta hana hafa mátulega fyrir mér - svo pabbi þurfti stundum að taka í taumana - eins og þegar ég var búin að klínana banana út um allt því ég vildi ekki borða hjá henni. Svo gekk svolítið erfiðlega fyrst að fá mig til að sofa en svo gekk það :) Við fórum líka út í garð að leika og lékum alveg helling saman :) Núna er Steinunn & Halli líka flutt hérna rétt hjá okkur og mér finnst það sko aldeilis fínt! Ég læt bara eins og ég eigi íbúðina þeirra með húð og hári - mamma og pabbi segja að það sé sko greinilega að þarna líði mér vel því ég er alveg ég sjálf. Ég á það nefnilega til að umturnast þegar við förum héðan út og setja upp mjög alvarlegan svip og þykjast vera afar alvarleg ung kona.
Núna á mamma bara eftir að vinna í eina viku - svo fer hún eina viku í skólann og þá er hún bara komin í kæruleysið hún mamma. Við ætlum að vera saman í einhvern tíma á daginn & svo fer ég, stóra stelpan bara að byrja hjá dagmömmunni :) Það verður nú aldeilis fróðlegt að sjá hvernig ég tek því! Ég á nú samt eftir að sakna þess ótrúlega mikið að hafa ekki pabba eða mömmu hjá mér allan daginn en ég þarf nú að læra aðeins að sleppa af þeim höndunum. Og þau auðvitað af mér - ætli það endi ekki á því að þetta veri erfiðara fyrir þau heldur en mig!
Í gær var Ólöf frænka hjá okkur allan daginn og var rosalega dugleg að leika við mig og passa mig. Í dag vorum við svo eiginlega bara allan daginn í Kópavoginum að setja saman fataskáp fyrir Mörtu. Eða pabbi var að setja saman skápinn - mamma skipti sér af og hjálpaði líka aðeins og ég var bara að dúllast og svona með mömmu, ömmu og Mörtu til skiptis. Mér fannst ægilega gaman að fá að máta skápinn … það kom meira segja upp sú hugmynd að þarna gæti ég bara átt sérherbergi þegar ég kem í heimsókn :) Við fórum svo til ömmu og afa í mat og ég fékk lambakjöt og kartöflur í kvöldmatinn og borðaði svo vel að ég fékk perumauk í eftirrétt. Um daginn leyfði afi mér að fara út á svalir hjá þeim og ég er alltaf svo spennt að komast þangað núna. Í dag uppgötvaði ég meira að segja hvernig átti að opna hurðina og náði hespunni af … sem betur fer stendur hurðin á sér annars hefði ég flogið út á svalir.
Jæja þetta er nú meiri ritgerðin sem eg er búin að skrifa … þetta er komið ágætt. Þið megið svo endilega - enn einu sinni - vera dugleg við að skrifa í gestabókina og gefa comment :) Knús & kossar