Sumarbústaðarferð
Þá er ég búin að fara í fyrstu sumarbústaðaferðina mína og fara á mitt fyrsta Landsmót skáta! Við fórum seint á föstudagskvöldið upp á Úlfljótsvatn og þar biðu Ari & Maja spennt eftir mér og voru líka sæmilega ánægð að sjá mömmu & pabba! Það er sko laglega búið að spilla mér - ég mátti ekkert vera að því að sofa og vildi bara vera í fjörinu! Fór að sofa eftir miðnætti bæði kvöldin og vakti svo allt liðið snemma um morguninn
Á föstudagskvöldið kíktum við öll niður að skátasvæðinu en þar var Landsmót skáta í gangi og röltum um svæðið.
Fórum svo aftur á laugardeginum og þá var rosastuð. Afi Addi kom og var með okkur á laugardeginum - í alveg ææææðislegu veðri og ég var sko smurð í bak og fyrir og var alveg bara í næstum engum fötum. Mamma týndi meira að segja smekkbuxunum mínum og fann þær svo aftur eftir varðeldinn um kvöldin bundnar upp á staur
Svo var auðvitað heiti potturinn sem var algjört æði - ég fékk kút og gat svamlað um bara og skemmt mér vel. En þegar ég fór ferð nr.2 var ég orðin svo örugg með mig í vatninu að ég sat bara í pottinum sjálf og sullaði og skemmti mér. Svo henti ég mér meira að segja einu sinni úti vatnið á eftir dótinu! Um kvöldmatarleytið á laugardeginum komu svo Iðunn & Brynjar og þau grilluðu en ég fékk bara melónu og graut. Um kvöldið fórum við svo á varðeldinn og kvöldvökuna og það var rosa gaman. Mér leist samt ekki á þegar allt þetta fólk byrjaði að hrópa og var svolítið skelfd. Svo var flugeldasýning með alveg rosalegum bombum … en það var svo mikil þoka að það var skelfilegur hávaði og ég grét bara og grét - sá engin ljós!
Í morgun var svo skýjað en fljótlega var komin sama bongóblíða og í gær. Iðunn var með mig eiginlega allan daginn og ég var bara pínu mömmusjúk. Iðunn meira að segja klæddi mig alveg sjálf og ég var bara pínu óþekk við hana
Svo fóru Iðunn & Ari með mig á róló og leyfðu mér að prófa allskonar dót. Það var rosalega gaman
Mamma og pabbi komu samt á eftir okkur til að taka myndir plús það að mamma hefur ekki farið með mig á róló svo lengi að hana langaði að sjá mig leika. Svo brunuðum við í bæinn um tvö leytið og ég steinsvaf alla leiðina og lagði mig svo aftur þegar ég kom heim - bara til að vinna upp svefnleysið um helgina. Við fórum svo öll til ömmu í Kópavoginum að borða og það var rosagaman þegar ég var búin að borða og orðin kát.
Núna er ég farin að sofa - þetta fólk er svo leiðinlegt að láta mig bara gráta og gráta - alveg sama þó ég hengi mig á pabba og knúsa hann og vilji ekki að hann fari. Þau segja að ég verði að fara að sofna sjálf! Ótrúlega ósanngjarnt lið þessir foreldrar mínir ![]()
Kveðja
Saga Guðrún sumarbústaðagella
25. júlí 2005 kl.12:20
rosalega varstu snjöll að hetanst á eftir dótinu.