Lúsarkrús
Núna er Steina frænka komin til mín og ætlar að búa hérna hjá mér þar til að hún fer aftur heim til sín. Ég er rosalega ánægð því Steina er alveg rosalega mikið uppáhald. Ég verð að vera dugleg að nota tímann á meðan hún er hjá mér því það verður ábyggilega soldið langt þangað til við hittumst næst! Í gærkvöldi sat hún hjá mér á meðan ég sofnaði og það var bara allt í lagi - amk var það skárra en að vera alein inn í rúmi.
Mamma & pabbi eru núna að láta mig sofna sjálfa á kvöldin. Mér finnst þau ömurleg
Alveg hundleiðinleg - mér finnst nefnilega svo gott að vefja mig utan um þau og knúsa og kúra lengi lengi áður en ég sofna en þeim finnst það vera dálítið erfitt þannig. Mamma fór meira að segja út að hjóla í kvöld til að þurfa ekki að hlusta á skælurnar í mér. En ég var svo hugulsöm að ég beið eftir að hún kæmi heim með að sofna svo hún vissi örugglega að mér mislíkaði þessi framkoma! Mamma er samt svo vitlaus að hún leyfði mér að sofa áfram hjá sér þegar ég var búin að drekka … en þetta kemur allt smátt og smátt.
Á morgun ætla mamma og pabbi að fara með mig í sund. Í útisundlaug og allt því það er búið að vera svo gott veður. Steinunn, Halli & Anna Petrea ætla að koma með okkur…það verður ábyggilega rosalega gaman. Ég fékk nefnilega uppblásinn hval frá Maju frænku sem var að koma frá Spáni og hann ætlar með okkur í sund
Rosalega spennandi allt saman
Um helgina ætlum við svo kannski að kíkja á Maju og krakkana í sumarbústað á Úlfljótsvatni. Ef það verður gott veður þá kannski gistum við … en annars bara kíkjum í heimsókn og kannski á þessa skáta þarna í sveitinni.