Aumt lítið grey

Jæja, nú er ég orðin svo stór stelpa að ég er bara farin að segja mömmu hvað hún á að skrifa hér! Núna er hún bara orðinn ritarinn minn!

Ég fór á heilsugæsluna á mánudaginn því ég var ennþá svo lasin en þetta var bara að ganga og ekkert hægt að gera fyrir mig. Ég var svo með einhverja hitavellu á þriðjudaginn en á miðvikudag var ég sæmilega hress, fékk reyndar í magann og var alveg að fyllast kvefi. Núna er ég með viskírödd segir mamma og ekkert mikið fyrir að brúka hana neitt.
Í gær gerðist nú margt. Ég olli fyrstu skemmdunum á heimilinu og svo fór ég, stóra stelpan sjálf, í fyrstu næturgistinguna mína. Það var ekki alveg alvöru sko en svona næstum því. Ég náði að skemma DVD spilarann hérna heima … var að skríða … opnaði skúffuna og ákvað að það væri kjörið tækifæri að reyna að standa upp við DVD-skúffuna en það gekk ekki alveg. Um kvöldið voru svo mamma og stelpurnar úr Hinu Húsinu stóðu nefnilega fyrir tónleikum á NASA og pabbi stakk mig af líka. Steina frænka er að passa húsið hjá Maju frænku og ég fór þangað í pössun. Steina & Kolur ætluðu að passa mig en svo kom afi Addi í heimsókn líka - sem var auðvitað rosa gott. Hann afi kann nefnilega alveg á svona frekjudollu stelpur enda á hann þrjár sjálfur og þrjár afastelpur. Ég var ekkert rosalega auðveld enda leið mér ekki vel enda ennþá að jafna mig. Mamma og pabbi komu svo ekki fyrr en í nótt til að lúlla hjá okkur og þegar þau komu vildi ég sko bara hana mömmu mína!
En já, það er ekki ofsögum sagt að ég sé dugleg stelpa. Mömmu og pabba hefur lengi grunað að ég segi hin ýmsu orð en vildu ekki vera að gera sér of háar hugmyndir um það en núna eru þau eiginlega orðin alveg viss - en ekki hvað! Ég segi pabbi, takk, datt, já, nei, Saga, stór og TÝNDUR er uppáhaldsorðið mitt eins og uppáhaldsleikurinn minn. Mamma og pabbi náðu því á myndband um daginn þegar ég segi týndur 4x mjög skýrt og greinilega!
Jæja - þetta er komið gott í bili … ég ætla að taka því rólega um helgina og jafna mig alveg svo við pabbi getum gert eitthvað skemmtilegt í næstu viku … Halli er nefnilega eitthvað að passa Önnu Petreu og vonandi gerum við fjögur eitthvað skemmtilegt saman! Svo þarf ég að komast í sund á meðan ungbarnasundið er í fríi :) Knús og kossar
Saga Guðrún sætasta

2 athugasemdir við “Aumt lítið grey”

  1. Ágústa skrifaði:

    Hæ hæ Saga sæta. Gott hjá þér að vera sjálfstæð og segja mömmu þinni hvað hún á að skrifa hérna á síðunni! Mig langar alveg ótrúlega að heyra þig segja týndur… en ég held að linkurinn sé bilaður, allavegana ekki virkað hjá mér í tveimur tölvum. Láttu mömmu þína eða pabba þinn laga þetta og haltu áfram að vera dugleg að skemma eitthvað eins og DVD spilarann um daginn :)

  2. Soffía skrifaði:

    Hmmm … myndbandið virkar fínt hérna hjá okkur… En það er frekar stórt til að downloadast … Reyndu aftur/betur :)