Ennþá lasin :(
Saga Guðrún er ennþá lasin
Búin að vera með háan hita í allan dag og lítil í sér. Hún er samt ótrúlega brött … er til dæmis í fínu stuði hérna núna rétt fyrir miðnætti enda stílarnir farnir að slá á vanlíðanina. Hún hefur sofið mikið en ekki verið dugleg að borða eða drekka … aðeins nokkrar skeiðar af blönduðu ávaxtamauki og svo nokkrir sopar úr brjóstinu! Ansi slæmt þar sem að daman átti að mæta í sjónvarpsviðtal með mér á morgun … en það verður nú varla úr því nema henni snarbatni í nótt. Sem náttúrulega væri toppurinn
Jæja … ætlaði bara að láta vita ef þið eruð að fylgjast með