Skjalasafn fyrir júlí, 2005

9 mánaða skvísa :)

31. júlí, 2005

Það er nú sosem ekkert sérstakt búið að gerast hjá mér undanfarna viku - nema ég er úti um allt - upp á öllu og alveg óstöðvandi bara :) Ég er nú líka orðin níu mánaða - alveg að verða fullorðin og þess vegna verð ég að flýta mér aðeins :) Ég er alveg farin að labba meðfram öllu - labba með göngugrindina mína, stóla, leikgrindur og bara að sem til fellur. Ég er líka algjör tætibuska en ég er bara svo rosalega hugulsöm stelpa - ég er bara að sjá til þess að þetta lið sé ekkert of latt hérna! Mamma & pabbi hafa sko meira en nóg að gera við að fylgjast með mér. Það er nefnilega mest spennandi það sem ég má ekki koma nálægt. Ég er búinn að eyðileggja dvd spilarann þeirra & svo er mér búið að takast að skemma tölvuna hennar mömmu líka aðeins …
Ég fór líka 2x út að borða í seinustu viku og fékk að smakka franska kartöflu (alveg ókryddaða samt) í fyrsta skipti og nartaði í gúrku á meðan hinir fengu sér voða fínan mat! Ég er orðin svo sjálfstæð að mamma og pabbi eru alveg í vandræðum með að gefa mér að borða. Ég vil helst bara borða allt sjálf! Enda eru þau alveg að gefast upp og leyfa mér að borða flest allt sjálf - og keyptu líka handa mér glas með röri svo ég get drukkið sjálf líka. Ekki ónýtt sko :) Ég prófaði líka trampólín í fyrsta skipti - verst að ég get ekki hoppað sjálf ennþá. Marta frænka fékk nefnilega trampólín í afmælisgjöf sem ég fékk að prófa. Ég skoppaði aðeins á rassinum en pabbi & Marta hoppuðu og skoppuðu alveg út um allt. Pabbi vildi ekki einu sinni fara út að borða því þá varð hann að hætta að hoppa. Ég ætla laglega að skoppa á þessu þegar ég verð orðin aðeins stærri :)
Já & auðvitað! Það var eitt merkilegt sem gerðist í vikunni. Við mamma fórum að heimsækja dagmömmu! Ég ætla að vera hjá henni hálfan daginn í vetur á meðan mamma ætlar að vera dugleg að læra. Ég byrja sennilegast í september. Mamma og pabbi eru viss um að ég hafi gott af því að komast aðeins frá þeim - því ég er orðin rosaleg mömmurófa :( Svo verður ábyggilega rosalega gaman að vera með fleiri krökkum að leika og svona. Mamma er soldið spennt að sjá hvernig ég eiginlega verð - hún fær pínu í magann kellingin við tilhugsunina en hver veit … kannski kem ég henni bara á óvart ;)

Sumarbústaðarferð

24. júlí, 2005

Þá er ég búin að fara í fyrstu sumarbústaðaferðina mína og fara á mitt fyrsta Landsmót skáta! Við fórum seint á föstudagskvöldið upp á Úlfljótsvatn og þar biðu Ari & Maja spennt eftir mér og voru líka sæmilega ánægð að sjá mömmu & pabba! Það er sko laglega búið að spilla mér - ég mátti ekkert vera að því að sofa og vildi bara vera í fjörinu! Fór að sofa eftir miðnætti bæði kvöldin og vakti svo allt liðið snemma um morguninn :) Á föstudagskvöldið kíktum við öll niður að skátasvæðinu en þar var Landsmót skáta í gangi og röltum um svæðið.

Fórum svo aftur á laugardeginum og þá var rosastuð. Afi Addi kom og var með okkur á laugardeginum - í alveg ææææðislegu veðri og ég var sko smurð í bak og fyrir og var alveg bara í næstum engum fötum. Mamma týndi meira að segja smekkbuxunum mínum og fann þær svo aftur eftir varðeldinn um kvöldin bundnar upp á staur :) Svo var auðvitað heiti potturinn sem var algjört æði - ég fékk kút og gat svamlað um bara og skemmt mér vel. En þegar ég fór ferð nr.2 var ég orðin svo örugg með mig í vatninu að ég sat bara í pottinum sjálf og sullaði og skemmti mér. Svo henti ég mér meira að segja einu sinni úti vatnið á eftir dótinu! Um kvöldmatarleytið á laugardeginum komu svo Iðunn & Brynjar og þau grilluðu en ég fékk bara melónu og graut. Um kvöldið fórum við svo á varðeldinn og kvöldvökuna og það var rosa gaman. Mér leist samt ekki á þegar allt þetta fólk byrjaði að hrópa og var svolítið skelfd. Svo var flugeldasýning með alveg rosalegum bombum … en það var svo mikil þoka að það var skelfilegur hávaði og ég grét bara og grét - sá engin ljós!

Í morgun var svo skýjað en fljótlega var komin sama bongóblíða og í gær. Iðunn var með mig eiginlega allan daginn og ég var bara pínu mömmusjúk. Iðunn meira að segja klæddi mig alveg sjálf og ég var bara pínu óþekk við hana ;) Svo fóru Iðunn & Ari með mig á róló og leyfðu mér að prófa allskonar dót. Það var rosalega gaman :) Mamma og pabbi komu samt á eftir okkur til að taka myndir plús það að mamma hefur ekki farið með mig á róló svo lengi að hana langaði að sjá mig leika. Svo brunuðum við í bæinn um tvö leytið og ég steinsvaf alla leiðina og lagði mig svo aftur þegar ég kom heim - bara til að vinna upp svefnleysið um helgina. Við fórum svo öll til ömmu í Kópavoginum að borða og það var rosagaman þegar ég var búin að borða og orðin kát.

Núna er ég farin að sofa - þetta fólk er svo leiðinlegt að láta mig bara gráta og gráta - alveg sama þó ég hengi mig á pabba og knúsa hann og vilji ekki að hann fari. Þau segja að ég verði að fara að sofna sjálf! Ótrúlega ósanngjarnt lið þessir foreldrar mínir :)
Kveðja
Saga Guðrún sumarbústaðagella

Lúsarkrús

20. júlí, 2005

Núna er Steina frænka komin til mín og ætlar að búa hérna hjá mér þar til að hún fer aftur heim til sín. Ég er rosalega ánægð því Steina er alveg rosalega mikið uppáhald. Ég verð að vera dugleg að nota tímann á meðan hún er hjá mér því það verður ábyggilega soldið langt þangað til við hittumst næst! Í gærkvöldi sat hún hjá mér á meðan ég sofnaði og það var bara allt í lagi - amk var það skárra en að vera alein inn í rúmi.
Mamma & pabbi eru núna að láta mig sofna sjálfa á kvöldin. Mér finnst þau ömurleg :( Alveg hundleiðinleg - mér finnst nefnilega svo gott að vefja mig utan um þau og knúsa og kúra lengi lengi áður en ég sofna en þeim finnst það vera dálítið erfitt þannig. Mamma fór meira að segja út að hjóla í kvöld til að þurfa ekki að hlusta á skælurnar í mér. En ég var svo hugulsöm að ég beið eftir að hún kæmi heim með að sofna svo hún vissi örugglega að mér mislíkaði þessi framkoma! Mamma er samt svo vitlaus að hún leyfði mér að sofa áfram hjá sér þegar ég var búin að drekka … en þetta kemur allt smátt og smátt.
Á morgun ætla mamma og pabbi að fara með mig í sund. Í útisundlaug og allt því það er búið að vera svo gott veður. Steinunn, Halli & Anna Petrea ætla að koma með okkur…það verður ábyggilega rosalega gaman. Ég fékk nefnilega uppblásinn hval frá Maju frænku sem var að koma frá Spáni og hann ætlar með okkur í sund :) Rosalega spennandi allt saman :) Um helgina ætlum við svo kannski að kíkja á Maju og krakkana í sumarbústað á Úlfljótsvatni. Ef það verður gott veður þá kannski gistum við … en annars bara kíkjum í heimsókn og kannski á þessa skáta þarna í sveitinni.

Aumt lítið grey

16. júlí, 2005

Jæja, nú er ég orðin svo stór stelpa að ég er bara farin að segja mömmu hvað hún á að skrifa hér! Núna er hún bara orðinn ritarinn minn!

Ég fór á heilsugæsluna á mánudaginn því ég var ennþá svo lasin en þetta var bara að ganga og ekkert hægt að gera fyrir mig. Ég var svo með einhverja hitavellu á þriðjudaginn en á miðvikudag var ég sæmilega hress, fékk reyndar í magann og var alveg að fyllast kvefi. Núna er ég með viskírödd segir mamma og ekkert mikið fyrir að brúka hana neitt.
Í gær gerðist nú margt. Ég olli fyrstu skemmdunum á heimilinu og svo fór ég, stóra stelpan sjálf, í fyrstu næturgistinguna mína. Það var ekki alveg alvöru sko en svona næstum því. Ég náði að skemma DVD spilarann hérna heima … var að skríða … opnaði skúffuna og ákvað að það væri kjörið tækifæri að reyna að standa upp við DVD-skúffuna en það gekk ekki alveg. Um kvöldið voru svo mamma og stelpurnar úr Hinu Húsinu stóðu nefnilega fyrir tónleikum á NASA og pabbi stakk mig af líka. Steina frænka er að passa húsið hjá Maju frænku og ég fór þangað í pössun. Steina & Kolur ætluðu að passa mig en svo kom afi Addi í heimsókn líka - sem var auðvitað rosa gott. Hann afi kann nefnilega alveg á svona frekjudollu stelpur enda á hann þrjár sjálfur og þrjár afastelpur. Ég var ekkert rosalega auðveld enda leið mér ekki vel enda ennþá að jafna mig. Mamma og pabbi komu svo ekki fyrr en í nótt til að lúlla hjá okkur og þegar þau komu vildi ég sko bara hana mömmu mína!
En já, það er ekki ofsögum sagt að ég sé dugleg stelpa. Mömmu og pabba hefur lengi grunað að ég segi hin ýmsu orð en vildu ekki vera að gera sér of háar hugmyndir um það en núna eru þau eiginlega orðin alveg viss - en ekki hvað! Ég segi pabbi, takk, datt, já, nei, Saga, stór og TÝNDUR er uppáhaldsorðið mitt eins og uppáhaldsleikurinn minn. Mamma og pabbi náðu því á myndband um daginn þegar ég segi týndur 4x mjög skýrt og greinilega!
Jæja - þetta er komið gott í bili … ég ætla að taka því rólega um helgina og jafna mig alveg svo við pabbi getum gert eitthvað skemmtilegt í næstu viku … Halli er nefnilega eitthvað að passa Önnu Petreu og vonandi gerum við fjögur eitthvað skemmtilegt saman! Svo þarf ég að komast í sund á meðan ungbarnasundið er í fríi :) Knús og kossar
Saga Guðrún sætasta

Ennþá lasin :(

11. júlí, 2005

Saga Guðrún er ennþá lasin :( Búin að vera með háan hita í allan dag og lítil í sér. Hún er samt ótrúlega brött … er til dæmis í fínu stuði hérna núna rétt fyrir miðnætti enda stílarnir farnir að slá á vanlíðanina. Hún hefur sofið mikið en ekki verið dugleg að borða eða drekka … aðeins nokkrar skeiðar af blönduðu ávaxtamauki og svo nokkrir sopar úr brjóstinu! Ansi slæmt þar sem að daman átti að mæta í sjónvarpsviðtal með mér á morgun … en það verður nú varla úr því nema henni snarbatni í nótt. Sem náttúrulega væri toppurinn :) Jæja … ætlaði bara að láta vita ef þið eruð að fylgjast með

Sögulús

9. júlí, 2005

Nú er Saga Guðrún farin að skríða … hún er búin að vera að taka örfá skref núna í vikunni af og til en svo í gærkvöldi tók hún sig til og bara ákvað að taka þetta með stæl :) Heldur betur flott á því … hún er nú samt ennþá bara róleg í þessu og tekur bara nokkur skref í einu en þetta er amk byrjunin :)
Það er svosem ekkert annað merkilegt í fréttum. Nema við fórum í mat til ömmu og afa áðan og kíktum svo út á Álftanes að sækja myndir sem Magnús kom með frá Hollandi og færa Ólöfu afmælisgjöfina sína. Guðrún spurði fljótlega hvort Saga væri að verða veik sem við héldum nú ekki … en þegar heim var komin var hún komin með næstum 40 stiga hita litla greyið :cry: Hún fékk stíl en er samt ennþá mjög aum og lítil í sér … vonandi sefur hún þetta bara úr sér. Hún hefur verið með smá hor en ekkert alvarlegt svosem!

Ég er búin að vera að dunda mér við að endurbæta síðuna eins og þið sjáið … nýtt útlit og nokkrar nýjar undirsíður ;) Ég veit ekki … en ég er ferlega ánægð með þetta :)

Sögu-rófa

3. júlí, 2005

Það er sko mikið að gerast hjá okkur þessa dagana. Saga Guðrún er orðinn hálfgerður uppstandari bara … gerir allskonar trix aftur og aftur og ekkert mál að leggja inn pöntun! Hún stendur upp allsstaðar og er meira að segja farin að rembast við að labba með sem gengur nú ekkert alltof vel!
Steina frænka kom frá Noregi á sunnudaginn og þær frænkurnar náðu strax vel saman. Steina er búin að passa hana og það gekk ljómandi vel og svo meira að segja eru þær búnar að leggja sig saman án mikilla láta sem er nú ekki á allra færi! Svo leggur frænkan sig fram um að spilla barninu og lætur sko okkur ekkert stoppa sig! Saga frekjurófa lætur sér það bara vel líka.
Annars er hún að verða meira og meira mömmusjúk þessa dagana. Hún lá til dæmis áðan inn í rúmi og átti að vera að sofa með pabba sínum en hún grét í rúman hálftíma en um leið og ég kom og lagðist upp í þá tók hún andköf og hætti að gráta en var með rosalega ekkasog lengi á eftir. Hún er algjör frekjurófa … greinilega verið að reyna á þolrifin í öllum þessa dagana. En hún er auðvitað yfirleitt alltaf mjög góð og stillt.
Hún fór síðan í 8 mánaða skoðun núna í vikunni og sló í gegn. Var búin að þyngjast og lengast fínt og gerði svo allt sem hún kann og gott betur en það. Sýndi hversu vel hún er upp alin og þakkaði fyrir sig í fyrsta skipti … og harkaði af sér sprautuna. Amma Edda átti líka afmæli og Saga sló að sjálfsögðu í gegn þar líka og svo fór hún líka í pössun til hennar um helgina og það gekk líka ljómandi. Hún er svo sannarlega að fullorðnast barnið - hefur þroskast alveg ótrúlega núna á stuttum tíma. Við sáum það best á sundinu í morgun - reyndar var enginn kennari og bara frjáls tími en hún var sko þvílíkt dugleg og vildi endilega spjalla við hina krakkana og var bara algjört æði.

Eftir að hún hætti á hægðalyfinu og þetta kúkastand komst í réttan farveg þá hefur hún líka bara breyst svo mikið! Er miklu hamingjusamari og ánægðari með lífið og tilveruna - algjört yndi bara :)
Ég er líka búin að dunda mér við það undanfarið að breyta síðunni hennar aðeins. Breytti til dæmis “um mig” og bætti við tenglum og svona.