Hæ hó og jibbí jei og jibbí jey
*Hóst* Gjörið svo vel að skilja eftir kveðju í gestabókinni *hóst*
Jæja nú er dálítið langt liðið síðan við skrifuðum seinast. Við erum núna að passa Herkúles … ferfætta fóstursonurinn og það gengur alveg ljómandi vel. Saga og hann eru fínustu vinir og bara mjög sátt við þetta. Þau ásamt Óla eru búin að vera dugleg að nýta góða veðrið í útiveru og göngutúra. Hún sefur síðan alveg eins og engill í vagninum út á svölum … eiginlega bara synd að hún geti ekki sofið úti heima.
Annars er lítið að fréta. Hún er bara duglegust og flottust eins og alltaf … gerir sig líklegari og líklegari til að fara að skríða. Svo getur hún mjakað sér um á maganum hér því hér er parket og gerir það allt mjög auðveldlega. Svo tætir hún um ískrandi í göngugrindinni og ekkert lítið gaman!
Í dag er sko aldeilis búið að vera gaman hjá okkur! Hópurinn minn í Hinu Húsinu var að sjá um barnagæslu fyrir týnd börn niðri í bæ og vorum þar frá 13 - 18 í dag. Það var náttúrulega glamapandi sól og við sátum alveg í skjóli frá sviðinu á Arnarhóli og þegar Saga var orðin dálítið þreytt … þá bara fékk hún sér blund í vagninum undir hljómsveitapallinum
Hún sá fullt af celebrity-um en hafði því miður ekki vit á því
Hefði annars sjálfsagt ekki fundist leiðinlegt að sjá Kalla á þakinu, Felix og Gunna, Maríu & Siggu, Nylon og fleiri! Það var náttúrulega svo svakalega gott veður að hún var bara á bol og buxum og ekkert höfuðfat tolldi á henni svo ég greip til þess ráðs að maka sólarvörn í hárið á henni
Svo fékk hún Bangsímon gasblöðru og fannst hún ÆÐI. En því miður þá nagaði hún hana af og var öll í bláu glimmeri! Svo á leiðinni aftur til ömmu þar sem við geymdum bílinn þá stoppuðum við á tjörninni og gáfum öndunum cheerios og barnið var eiginlega bara skelfingu lostið. Leist ekki á þessa fásinnu að gefa öndunum cheeriosið hennar