Saga matargat :)
Jæja nú hef ég bara fulla trú á að stelpan fari að þyngjast! Síðan hún losnaði við kvefið hefur hún verið mjög dugleg að borða. Við erum aftur að gera tilraun til að sleppa hægðalyfinu og það kemur í ljós hvernig það gengur. So far so good
Við erum líka farin að bæta inn bönunum líka … hún fær stappaðan banana með hafragrautnum sínum og líkar bara mjög vel! Hún hefur líka verið nokkuð dugleg við að standa upp en er komin með nóg af því trixi núna og fer bara upp á hnén! Hún er samt alltaf að gera sig líklegri og líklegri til að fara að skríða … þarf bara að læra að treysta þessum handleggjum en hún gefst alltaf upp þegar þunginn kemur á þá
Svo er hún búin að læra að vinka og lætur fylgja með því hljóð sem getur vel útlagst sem bæ.
Við fórum í sveitaferð með stelpunum úr Hinu Húsinu á þriðjudaginn. Brunuðum upp í Mosfellsbæ eftir vinnu og tókum Ingunni & Tinnu Mjöll með okkur. Við vorum aðallega að fara að kveðja Hrafnhildi sem er búin að sjá um hópinn okkar í vetur og kíkja á kindurnar hennar á leiðinni. Hér má sjá svipinn á dömunni þegar hún steig inn í fjárhúsið! Hún á svo sem ekkert langt að sækja hræðslu við kindur eða bara að vera hræðslupúki yfir höfuð! Hún beið svo bara úti á meðan ég skoðaði lömbin og kindurnar. Svo sátum við úti í sólinni lengi vel og Saga heimtaði bara brjóst út í brekku og drakk það með bestu lyst! Svo voru stóru stelpurnar að borða kex og drekka svala og það fannst henni ekki lítið spennandi. Með sjálfsbjargarviðleitnina að leiðarljósi náði hún sér svo í kremkex og saug það í pínustund þar til að það kom hundur og borðaði það af henni
Svo fékk hún risastóran hund í fangið og var bara alsæl að rífa aðeins í hana og barasta ekkert mál! Það var alveg úrvinda stelpuskott sem kom heim um kvöldið eftir alla útiveruna!
Það hefur gengið alveg bara mjög vel hjá þeim feðginunum á meðan ég er að vinna. Ég er samt ekki frá því að hlutverkin séu að snúast við … amk finnst henni ég alveg miklu fyndnari en áður en ég fór að vinna. Ég þarf ekkert að hafa fyrir því ![]()
Svona af því að ég geri það aldrei … þá má alveg endilega kvitta bæði í gestabókina hennar & við myndirnar hennar! Eiginlega þá er það bara skylda sko