Fullt í fréttum
23. júní, 2005Nú er aldeilis búið að vera nóg að gera
Saga Guðrún er farin að vinka eins og herforingi og eiginlega alveg búin að læra að klappa! Svo myndast hún aftur og aftur við að skríða en festist alltaf um leið og hún er alveg að komast á fjóra fætur. Þá fýkur nú líka í mína konu enda lætur hún mann alveg vita ef henni mislíkar hlutirnir
Ekki hægt að segja annað en að hún sé ákveðin ung kona ![]()
Á laugardaginn fórum við með Darra Jökli og foreldrum hans í Húsdýragarðinn og það var ótrúlega gaman
Sögu leist nú ekkert rosalega vel á dýrin en skemmti sér sérlega vel þegar hún fékk kleinu og eplasafa í veitingatjaldinu. Eftir húsdýragarðinn grilluðum við svo saman og í fyrsta skipti tókst Sögu að koma Darra til að gráta
Yfirleitt er það hún sem grætur undan leikfélögunum en í þetta skiptið kom öskurapinn minn eitthvað illa við Darra sem var dauðhræddur við lætin í dömunni.
Annars er svosem ekki mikið búið að vera að gerast. Við fórum út að borða á Pizza Hut með langömmu Drífu og frænkum og frændum um helgina og Saga var alsæl að borða cheerios og svo drekka pínu Trópí. Þetta gekk ólíkt betur en í hitt skiptið sem hún fór á Pizza Hut þegar hún sofnaði eiginlega trax í barnastólnum
Marta frænka kom svo og gisti hjá okkur og Saga er ekki neitt lítið hrifin af henni! Amma Edda var svo að koma frá New York og Saga er nú orðin meiri pæjan … fékk Levi’s buxur og GAP gallajakka og svo tvo kjóla
Ekkert lítið flott! Annars eru Saga & pabbi bara búin að vera dugleg að fara í göngutúr með Herkúles …
Um helgina erum við að fara í tvö afmæli, til Tristans sem er að verða eins árs og langömmu Boggu sem er að verða 91 árs
Svo á Ólöf skvísa líka 8 ára afmæli á laugardaginn en hún er auðvitað úti í Hollandi
Enda alveg nóg að fara í tvö afmæli á einni helgi
Á laugardaginn er mömmuhópurinn okkar úr Hinu Húsinu með kökubasar í Kringlunni … allir að koma og styrkja okkur!! Algjör skylda sko … annars er Sögu að mæta
EN á sunnudaginn kemur líka Steina frænka frá Noregi og vááááááá okkur hlakkar svo til! Það verður sko ekki leiðinlegt að hitta hana loksins … hún hefur heldur ekki séð skvísuna síðan um jólin og það er nú ekkert lítið sem hún hefur breyst síðan þá
Hún verður hérna fram í ágúst og Saga ætlar að nota tímann vel
Steina þarf líka að sjá til þess að Saga Guðrún verði pottþétt hundastelpa