Afrekskona
Það er ekki hægt að segja annað en að það sé bara allt að gerast hjá Sögu Guðrúnu þessa dagana! Hún er komin með sex tennur, fjórar uppi og tvær niðri, hún er farin að leika sjálf týndur-fundinn og hvað ertu stór og svo er hún farin að segja pabbi
Það er svosem ekki alveg víst en ég vil meina að þetta sé markvisst pabbi
Svo verður hún alveg endalaust stolt og ánægð með sig þegar hún leikur listir sínar ![]()
Við erum búin að fara í fyrsta sundtímann á framhaldsnámskeiðinu og það gekk svona alveg ágætlega. Hún vaknaði samt kl 7 og náði ekkert ða leggja sig aftur en námskeiðið byrjar rétt fyrir tíu og var orðin frekar þreytt. Henni finnst bara ekkert skemmtilegt að kafa
Eftir sundið fór hún á fyrsta íþróttamótið sitt og fylgdist áhugasöm með Iðunni frænku og Ara frænda berjast við hina ýmsu krakka en þegar þau svo áttu að berjast við hvort annað þá leist minni konu ekki á blikuna … vaknaði af værum blundi og alveg bara hágrét! En hún tók gleði sína á ný þegar þessi dugnaðarforkar fengu verðlaunin sín og leyfðu litlu frænkunni að skoða bikarana fjóra og medalíuna ![]()
Svo fór hún í aukavigtun á mánudag og í læknisskoðun í framhaldi af því þar sem hún heldur áfram að lækka í kúrfunni. Læknirinn skoðaði hana nú ekkert heldur horfði bara á hana og sagði að þetta væri nú ekki mikið áhyggjuefni … þetta væri mjög sprækt barn
Þannig að við ætlum ekkert að hafa miklar áhyggjur í bili … ég hugsa nú samt aðeins of mikið um þetta. Svona með tilliti til þess þá erum við hætt við afvötnunina og hún fær bara brjóstið sitt eins og hún vill! Veitir ekki af því greyinu litla …
Já og undur og stórmerki! Daman er farin að spá í hvernig hún ætti að fara að því að skríða! Mjög gaman að fylgjast með því! Í dag fórum við svo á Selfoss til Darra og Tinnu … við fórum meðal annars í göngutúr sem Sögu fannst nú svona skítsæmilegt en henni var stórlega ofboðið þegar ég lét hana sitja í grasi og skoða blóm eða setti hana í sandkassann. Það var samt alveg ágætt að róla. Þaðan fórum við svo beint til ömmu og afa þar sem hún lék á alls oddi í brjáluðu hláturskasti meðal annars
Var líka svo heppin að fá sætar kartöflur í matinn sem eru í miklu uppáhaldi
28. maí 2005 kl.13:03
“ekkert ða leggja”
Soffía þó, vanda fráganginn, þarft að fá þér betri villupúka