Músarkrús

Saga Guðrún heldur áfram að standa sig vel í sundinu og núna erum við búin með grunnnámskeiðið. Við förum svo á framhaldsnámskeið eftir hvítasunnuna svo það eru engin grið gefin! Svo er hún orðin svo dugleg að drekka hvar og hvenær sem er að hún lætur það ekkert stoppa sig að vera í sundi og drekkur bara samt. Eitthvað sem hefði ekki verið tekið í mál fyrir ekki svo löngu síðan. Núna bankar hún bara í brjóstin og borar svo nefinu ofan í þegar það má bjóða henni :) Í gær fór hún í fyrsta ferðalagið sitt … alla leið á Selfoss að heimsækja Darra Jökul vin sinn. Hún steinsvaf báðar leiðir og ekkert mál! Hún er sko aldeilis ákveðin og grenjaði alveg ferlega í hvert sinn sem Darri tók eitthvað dót af henni og lét sér ekki einu sinni detta í hug að taka það bara af honum í staðinn. Hún prufaði líka hoppurólu hjá honum og fannst það ekki lítið gaman.
Við fórum svo í Hitt Húsið í dag eins og venjulega og hún var eins og svefngengill þar til hún fékk sér að drekka og lék alveg á alls oddi eftir það. Hún alveg hoppaði og skríkti og brosti og hló. Það er ekki oft sem hún hagar sér svona annars staðar en heima hjá sér. Hún fann samt voðalega til með litla Benedikt Inga og kjökraði alltaf þegar hún horfði á hann gráta :) Ótrúlega dúlló :) Svo tætti hún bara í Tristan og tók snuðið af Elísabetu Láru svo að hún er ekkert alltaf í því að láta valta yfir sig :P
Það er nú líka nóg að gera í tanntökumálum hér á bæ. Þær eru 4 sem eru komnar upp og 3 sem ég er nokkuð viss um að séu að koma upp. Orðið vel hvítt tannholdið. Í dag fann ég svo eina sem er eiginlega komin alveg í gegn svo það er ekki verið að hangsa í þessum málum! Ekki skrýtið hvað hún er örg og lítil í sér inn á milli þessa dagana. Svo er hún ferlega snertifælin í kringum munninn eftir þessar athuganir mínar svo það gengur brösulega að vera viss.

Lokað er fyrir svör.